Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.04.1920, Side 45

Skírnir - 01.04.1920, Side 45
Skirnir] Ráðningastofur. 123 athuguðu betur en áður vinnubrögð verkamanna sinna, en af því mundi leiða skarpara skyn á þessum efuum og meiri áhugi á að bæta vinnubrögðin. Hver sem vandur væri að virðingu sinni mundi og þvi fremur reyna að <iæma rétt, sem hann vissi að aðrir ættu síðar að reka 8ig áþreifanlega á það, hve mikið væri á dómi hans að bygg.ia- Og þó að mælikvarðar manna yrðu að vonum nokkuð misjainir, eftir því hve góða starfsmenn hver hefir Nkt, þá yrðu einkunnir, sem gefnar væru um hvert verk út af fyrir sig, miklu meira virði fyrir þann sem ætti að ráða sér mann, heldur en vottorð eða meðmæli í almenn- nm orðum, eins og stundum má sjá. Gerum ráð fyrir, að bóndi ætti að gefa vinnumanni sínum alment vottorð og segði, að hann hefði reynst sér góður raeðalmaður til verka. Sá sem fær slíkt vottorð í hendur getur ekkert vitað um það, hvernig það er til komið. Hefir bóndi fyrst metið hvert einstakt verk og svo dregið meðaltal af ein- kunnunum fyrir þau, eða hafði hann þetta einhvern veg- inn á tilfinningunni? Er þessi maður t. d. góður fjármað- nr en ónýtur sláttumaður, eða á hinn veginn? Vottorðið 8egir ekkert um það. Og einmitt vegna þess, að ekki er hægt að reka neitt sérstakt ofan í þann sem slíkt vottorð gefur, af#því að hann hefir ekki tiltekið neitt sérstakt, þá Verður freistingin of mikil til að kasta til þess höndunum °g segja alt og ekki neitt. Með mannjafnaðaraðferðinni e,r reynt að gera vottorð um menn sem áreiðanlegust. Óskeikulir verða menn aldrei þar sem, eins og hér, er að r0eða um að meta en ekki mæla. En um mannaval fer úver eftir þeirri vitneskju sem hann getur fengið. Hér er reynt að gera þá vitneskju sem skýrasta, og ætti það að vera nokkur framför. Fyrirfram verður ekki um það sagt, hve fúsir menn ýrðu alment að taka upp slíkar vTinnubætur. Auðvitað væri hugsanlegt að skylda menn til þess með lögum, en eg held að heilbrigðast sé í þessu efni sem öðrum að beita ekki löggjafarvaldinu, nema þegar brýn nauðsyn kref- Ur> og reyna heldur að koma slíku á með frjálsari hætti.

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.