Skírnir - 01.04.1920, Side 46
124
Ráðningastofur.
[Skírnir
Alt niundi velta á því, hvaða stefnu húsbændur og yfir
höfuð vinnuveitendur tækju í þessu raáli, hvort þeir alrnent
vildu nota ráðningastofurnar, eða ekki. Gerura t. d. ráð
fyrir, að meginþorri húsbænda hér í Reykjavík auglýsti,
að þeir raundu ráða sér vinnukonur með aðstoð ráðninga-
stofunnar hér og ekki hafa aðra útvegi. Þær stúlkur, sem
ætluðu að ráðast i vist og ekki hefðu verið beðnar af
öðrum, yrðu þá að snúa sér til ráðningastofunnar. Nú
raundu liúsbændur vilja vita hvaða stúlkur það væru, sem
um væri að velja á ráðningastofunni, og beinasti vegur
fyrir hverja stúlku til að afla tryggilegrar skýrslu um það
væri að snúa sér til fyrverandi húsbænda sinna með vinnu-
bók og fá þá til að votta þar um frammistöðuna. Öllum
þeim sem staðið hefðu vel í stöðu sinni, mundi vera það
ljúft að eiga slik vottorð. Það væri bezta aðstoðin til að
fá beztu vistirnar og bezta kaupið. Hinura, sem staðið
hefðu ver í stöðu sinni, væri það auðvitað óljúfara. Þær
mundu. því að iíkindum ekki vilja koma með neina vinnu-
bók eða vottorð. Þær um það! En þeir sem réðu þær
til sín mundu þá ekki bjóða eins góð kjör, því að þeir
þættust kaupa köttinn i sekknum, og það að vilja engin
skiliíki sýna, gæfi grun um að það sem í boði væri mundi
ekki veia al beztu tegund. Þó mundu þessar stúlkur
ganga út að lokum eins og hinar, af því að hér er ekla
á vinnukonum. En reynslan kendi þeim, að bezta ráðið
til að eiga næst um betri kosti að velja á vinnumarkað-
inum væri að reynast nú vel og fá góðar einkunnir bjá
þessum húsbændum sinum. Þetta fvrirkoraulag yrði því
bæði til þess að hvetja til framfara og stuðla að því að
hver skæri upp eins og hún hefði sáð, en það er réttlæti.
— Líkt mundi verða um aðrar atvinnugreinir Þegar t.
d. þeir sem ráða stúlkur i síldarvinnu gætu séð nákvæm-
lega hvernig hver hefir reynst í hlutfalli við aðrar á sinni
stöð, þá gengju þær fyrst út, sem beztar væri í þessu
verki, því að þótt síldarvinnan sé ákvæðisvinna, þá mundi
hver útgerðarmaður kjósa að hafa færri stúlkur og dug-
legri, heldur en fleiri og ónýtari. Hann þyrfti því rninna