Skírnir

Volume

Skírnir - 01.04.1920, Page 51

Skírnir - 01.04.1920, Page 51
Skírnir] Um fatnað. 129 þófnar því miklu síður á skepnum, þar sem allir oddar vita i sömu átt, en laus ull eða spunniu. Jurtatrefjarnar eru ýmist basttrefjar úr jurtastönglum eóa plöntubár. Merkastar eru bómull og hör eða lín. Bómullin er fræhár bómullarjurtarinnar (gossypium). I sjónauka má sjá, að hárin eru fiöt, þunn og snúin bönd. Hör eru basttrefjar úr stönglum hörjurtarinnar (linum U8itatissimum). Þræðirnir eru misgildir sívalningar með þvergárum og smáhárum út úr. Eftir hverjum þræði miðjum gengur lítil loftsmuga. Hampur er lítt notaður til fata, en hann er bastþræðir úr hampjurtinni (cannabis sativum). Þeir líkjast hörtrefjum en eru grófgerðari og kvíslast i endana. SilTci eru afargrannir, sléttir, merglausir þræðir, sem silkiorraurinn (bombyx mori) spinnur utan um sig. Þræði þessa spinna ormarnir úr kvoðu, sem myndast í spuna- kirtlum þeirra, en harðna svo i loftinu líkt og þræðir þeir 8em kóngulær spinna. Þræðir þessir eru mjög sléttir, sí- valir, stundum tvöfaldir líkt og tveir þræðir væru límdir gaman. Þeir eru því mjög frábrugðnir dýrahárum. Svip- aöa þræði búa menn og til úr uppleystu trjáefni (nitro- ^ellulose), og svipar þeim mjög til silkis. Það er nefnt * r j á s i 1 k i. Rakasœlgni. Ef dúkaefnin eru látin liggja í röku lofti, þá draga þau öll í sig talsverðan raka, án þess að þau verði þó vot við átöku. Það kemur i ljós, að ullin dreg- Ur í sig hér um bil hálfu meira rakavatn en bómull og kör, en silki nokkru meira en bómullin. Hlýindi dukaefna eru talsvert á annan veg en dúk- anna, sem úr þeim eru unnir. Ef trefjunum eða hárunum er þjappað saman, svo ekkert loft sé milli þeirra, og hlý- indi þeirra borin saman við þurt loft, sem ekki hreyfist, þá eru hlutföllin þessi: Hlýindi loftsins........... 1----------*------ — þurrar ullar .... Vo rakrar V13 — þurs silkis.............Vis rftks Va7 — þurrar bómullar og hörs Vso ra^s Vss 9

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.