Valsblaðið - 01.05.1979, Síða 3
VALUR
34. tölublaö 1979
Ritnefnd:
Helgi Daníelsson
Jón Kristjánsson
Róbert Jónsson
0
Forsíðumynd:
Reykjavíkurmeistarar Vals í körfu-
knattleik 1979.
Standandi t.v.: Marino Sveinsson,
Helgi Sigurðsson, Torfi Magnús-
son, Sigurður Hjörleifsson, Tim
Dwyer, Guðmundur Jóhannsson,
þórir Magnússon. Fremri röð t.v.:
Jóhannes Magnússon, Óskar
Baldursson, Ríkharður Hrafnkels-
s°n, Jón Steingrímsson, Guð-
brandur Lárusson, Jón Oddsson,
^ristján Ágústsson.
Filmuvinna:
Prentmyndastofan hf.
Setning, prentun og bókband:
ísafoldarprentsmiðja hf.
Fylgt úr hlaði
Góðir Valsmenn.
Nú er blaðið ykkar komið út. Við vitum að margir hafa
beðið þess með eftirvæntingu, en hefur Valsblaðið verið
snar þáttur í félagsstarfi Vals í áratugi og e.t.v. sá merkasti.
Að þessu sinni er blaðið nokkuð stórt, enda spannar efni
þess yfir ein þrjú ár, þar sem reynt er að stikla á því helsta
sem skeð hefur á þessu árabili. í kaflanum Starfið er margt
sem er aftast í blaðinu, er úrdráttur úr skýrslum stjórnar og
deildastjórna frá árinu 1976.
Það eru margir sem hafa lagt hönd að verki í sambandi
við útgáfu þessa blaðs og er nokkra þeirra að finna fyrir
utan raðir Vals. Séra Halldór S. Gröndal skrifar fyrir okkur
hugvekju, sem hann nefnir: Hvernig standa leikar. Steinar
J. Lúðvíksson ræðir við nokkra knattspyrnumenn og for-
ráðamenn knattspyrnumála um vandamál knattspyrnunn-
ar í Val og er reynt að grafast fyrir um orsakir þess, hversu
fór hjá meistaraflokki Vals á liðnu sumri. Jón Birgir Péturs-
son blaðamaður skrifar fyrir okkur viðtal við Val Bene-
diktsson dómara, svo og við Valsfjölskylduna. Geir Sig-
urðsson skrifar skemmtilega grein sem hann nefnir: Gleði-
stundir geymast. Mjög athyglisverð grein eftir roskinn
mann, sem kemst í kynni við knattspyrnuna á efri árum.
Þá má nefna viðtal við Pétur Guðmundsson körfubolta-
mann, stutt viðtöl við Halldór Einarsson, Þórð Þorkelsson,
Úlfar Þórðarson og Stefán Gunnarsson. Handknattleiks-
menn ræða málin. Eitt og anna er úr félagslífinu, en þar er
rætt við unga Valsmenn, að ógleymdum mörgum skemmti-
legum ferðasögum sem ungir Valsmenn segja okkur í þætt-
inum Valsmenn á ferð og flugi. Þá er minnst látinna Vals-
manna.
Það er von okkar, sem berum ábyrgð á þessu blaði, að
þar finni allir Valsmenn eitthvað við sitt hæfi.
Við viljum að lokum þakka öllum þeim, sem lögðu til
efni í þetta blað og aðstoðuðu okkur á einn og annan hátt.
Auk þeirra sem hér hafa að framan verið nefndir viljum við
þakka Friðþjófi Helgasyni Ijósmyndara ómetanlega að-
stoð, og síðast en ekki síst starfsmönnum ísafoldarprent-
smiðju fyrir það langlundargeð og lipurð, sem þeir hafa
sýnt okkur. Ég vil að lokum þakka ritnefndarmönnum,
þeim Jóni Kristjánssyni og Róbert Jónssyni mjög gott starf,
því án þeirra væri þetta blað ekki komið út.
Helgi Daníelsson