Valsblaðið - 01.05.1979, Side 10

Valsblaðið - 01.05.1979, Side 10
að við héldum ekki þrekinu er mikil skýring á því hvað gerðist hjá okkur, því um leið og menn hafa ekki þrek til þess að leika heila leiki, þá tapa menn einnig sjálfs- örygginu og það kemur fram í aganum í liðinu. Þetta eru að mínu mati stærstu þættirnir sem snúa að okkur sjálfum, en síðan kemur þáttur þjálfarans sem var að mínu mati ekki maður til þess að valda þessu verkefni, án þess að ég vilji vera að gagnrýna hann frekar. Bjuggu að þjálfun dr. Yuri Valsblaðið: Hjá ykkur hafa komið fram mjög at- hyglisverð atriði, sérstaklega í sambandi við þjálfunina, en það er greinilega nokkuð samdóma álit ykkar að manna og stjórnar deildarinnar að sjá þetta ekki og hætta við endurráðningu hans. Ég játa það hrein- skilningslega að ég var einn af þeim sem vildi fá hann aftur, en það voru mistök. Við áttum að hafa komið auga á veikleika hans. Ólafur: Ég vil fyrir hönd stjórnarinnar aðeins svara því sem nú kom fram hjá Albert. Það var ljóst eftir árangurinn árið 1978, að ekki var ástæða til þess að endurskoða þessi mál, eða hafna Nemes þjálfara. Þá náðist betri árangur en nokkru sinni fyrr, og ég held að hvorki stjórn deildarinnar né leikmennirnir hafi haft ástæðu til þess að ætla annað en unnt væri að halda sínu striki undir stjórn þessa þjálfara. Maðurinn var reiðubúinn til þess að starfa áfram hjá okkur og Dýri.... Við vorum í baráttunni fram á síð ustu mínúlu. tala um aðra þjálfara í sömu andrá,- Bjarni... Nemes hafði ekki þá skapgerð að berja menn áfram Ingi Björn... Yuri er svo sér- stæður að varla er hægt að Nemes hafi ekki ráðið við verkefni sitt. Nú var þetta annað árið sem hann var með liðið. Viljið þið álíta að það haf fyrst og fremst verið störfum fyrrverandi þjálfara ykkar dr. Yuri að þakka, hvað Valur náði góðum árangri í fyrra? Bjó liðið þá að þjálfun hans? Dýri: Ef við lítum til siðustu íjögurra ára, þá kemur í ljós að árangur okkar er í sveiflum. Okkur gekk vel árin 1976 og 1978, en svo voru mögur ár 1977 og 1979. Það virðist svo sem að okkur gangi betur þegar við höfum verið með nýjan þjálfara. Það má segja að dr. Yuri hafi verið nýr hjá okkur árið 1976, þótt hann hafi verið búinn að vera áður hjá félaginu. Ég er ekki frá því að málin séu þannig að menn hlýði þjálfaranum betur fyrra árið sem hann er hjá því og spili samkvæmt honum, en fari svo að leyfa sér hluti sem eru miður æskilegir seinna árið. Albert: Ég held að það sé alveg rétt að við bjuggum að þjálfun dr. Yuri i fyrra, því eins og ég held að allir leikmenn í liðinu viti vel, þá kom Nemes ekki með neitt nýtt. Hann byggði einfaldlega upp á því sem fyrir var. Hann sagði t.d. hiklaust að hann væri hræddur að breyta liðinu. Það var auðvitað veikleiki bæði leik- 8 liðið hafði náð langt undir hans stjórn. Ég vil líka mót- mæla því sem Dýri sagði, að árið 1977, hafi verið magurt ár. Við urðum bikarmeistarar þá og í öðru sæti í íslands- mótinu, aðeins einu stigi á eftir Skagamönnum...... Dýri: ...við vorum líka í úrslitunum í bikarnum núna, og í baráttunni um íslandsmeistaratitilinn alveg fram á síðustu mínútu mótsins. Ólafur: Já, en liðið lék miklu betri knattspyrnu árið 1977. Það vantaði hjá liðinu í sumar að leika þá hörðu knattspyrnu með snöggum skiptingum, sem það gerði t.d. árið 1977. Bjarni: Ég held, að það sé ekki óeðlilegt að áhrifa dr. Yuri hafi gætt hjá liðinu árið 1978. Hann var búinn að vera lengi með hópinn og ná upp vel þjálfuðum leikkerfum hjá því. En ég held líka að það megi ekki vanmeta þátt Nemesar í árangri liðsins 1978. Þótt hann breytti ef til vill ekki miklu voru æfmgarnar hjá honum öðru vísi, og hann sjálfur var líka allt önnur manngerð en dr. Yuri. Mjög rólegur maður. Það var tvímælalaust ákveðin breyting sem átti sér stað, og það er örugglega nokkuð til í því sem Dýri var að segja, að þegar kemur nýr þjálfari þá skapast einnig ákveðin stemming. J
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.