Valsblaðið - 01.05.1979, Síða 18
Á óskalistanum eru
íþróttahús og vellir
A Valsdaginn 9. sept. sl. var vígður nýr og
glæsilegur knattspyrnuvöllur. Við það tœkifœri
flutti Þórður Þorkelsson formaður framkvœmda-
nefndar Vals ávarp og afhenti að lokum völlinn
með tilheyrandi aðstöðu til notkunar. íávarpi sínu
rakti Þórður sögu vallarmála Vals allar götur frá
þvífélagið var stofnað árið 1911. Þessi saga er hin
merkilegasta fyrir margra hluta sakir og er ávarp
Þórðar því birt í heild hér í blaðinu. Þar kemur m.a.
fram að heildarkostnaður við vallarframkvœmd-
irnar er orðinn 54 millj. króna og að félagið er
skuldlaust vegna þeirra.
Þórður Þorkelsson hefur verið formaður
Framkvœmdanefndar Vals allar götur frá því hún
var stofnuð árið 1971. Það er því á engan hallað,
þótt Valsmenn þakki honum gott starf í þágu
uppbyggingar Hlíðarenda, þótt að sjálfsögðu hafi
þar margir góðir menn lagt hönd á plóginn.
En hvað er framundan? Til þess að fræðasl um
það heimsóttum við Þórð á dögunum og inntum
hann eftir því.
Það sem næst er á dagskrá varðandi
framkvæmdir að Hlíðarenda er byggingvallar fyrir
körfu og handknattleik, sagði Þórður. Stærð hans
verður um það bil 30 x 50 metrar og verður hann
upphitaður og lagður varanlegu efni, líklegast
einhverskonar „tartanefni“. Þessum velli er
ætlaður staður milli núverandi bílastæðis og
grasvallarins. Við fylltum þetta svæði upp um leið
og við ýttum fyrir nýja vellinum og þarna höfum
við hugsað okkur að staðsetja völlinn. Ætlunin er
að lýsa upp völlinn og sýnist okkur því, að þarna
komi góður völlur bæði fyrir körfuknattleik og
handknattleik, auk þess sem knattspyrnumenn
ættu að geta æft á vellinum. Nú þá kemur til greina
að setja þarna upp tennisvöll. Það má semsé nota
slíkan völl til margra hluta. íþróttanefnd ríkisins er
búin að samþykkja þessa framkvæmd, en í fyrra
fékkst hún ekki inná fjárlög. Nú er íþróttanefndin
búin að samþykkja framkvæmdina aftur og við
vonum að hún komist inná fjárlög, að þessu sinni.
Hvað er áætlað að þessi framkvœmd kosti?
Það er áætlað að hún kosti 27 millj. króna. Ég vil
16
geta þess til viðbótar við það sem ég sagði áður, að á
þessum velli verður upplagt að halda útimót bæði í
handbolta og körfubolta og ætti aðstaðan þar að
verða sú besta sem hægt er að bjóða uppá hér á
landi fyrir slík mót.
Fleiri framkvœmdir?
Nú það er fleira á óskalistanum, eins og t.d.
íþróttahús og fleiri vellir. En það sem brýnast er, er
að endurbæta búningsherbergja- og baðaðstöðu,
bæði fyrir vellina og eins fyrir íþróttahúsið. Þá er
aðkallandi að byggja nýtt félagsheimili, auk þess
sem vantar íbúð fyrir mann sem hefði umsjón með
íþróttasvæðinu.
Hvað með frekari framkvæmdir við grasvelli?
Það er sýnt, að þótt við höfum tekið þennan nýja
grasvöll í notkun nú í haust, að við þurfum fleiri
velli, a.m.k. eina tvo til viðbótar þannig að leik-
menn gæti æft á grasvöllum, bæði vor og haust, auk
sumarsins, fyrr en svo er komið, er þetta ekki gott.
Við þökkum Þórði þetta stutta spjall og það er
vissulega rétt sem Þórður sagði að lokum, að það
eru óþrjótandi verkefni við uppbygginguna að
Hlíðarenda sem bíða úrlausnar og þar er sam-
eiginlegt verkefni fyrir alla Valsmenn að sjá um
að henni verði haldið áfram.
1