Valsblaðið - 01.05.1979, Síða 78

Valsblaðið - 01.05.1979, Síða 78
Kveðja frá Knattspyrnu- félaginu Val Kristjana Magnúsdóttir Við félagar í knattspyrnufélaginu Val kveðjum einn af okkar traustustu félögum. Hún var dóttir hjónanna Ágústu Steingrímsdóttur og Magnúsar M. Sigurjónssonar til heimilis að Skólagerði 69 í Kópavogi. Andlát Kristjönu kom okkur öllum á óvart, þrátt fyrir að við vissum að hún hafði um skeið barist hetjulegri baráttu við þann sjúkdóm, sem læknavísindin hafa enn ekki náð fullum tökum á. Við félagar henna ólum með okkur þá von að sjá Krissu, eins og hún var kölluð af vinum og kunningjum, fríska og glaða á ný meðal Valkyrjanna okkar, en hún var svo sannarlega ein af þeim afrekskonum. Það er erfitt um orð, hvað þá skrif, þegar svo ung manneskja, 26 ára gömul í blóma lífsins, er frá okkur tekin. Af vanmætti reynum við að ná valdi á pennanum og þakka okkar Krissu samfylgdina. Við reikum í huga okkar til ársins 1965, þegar ung og hlédræg telpa úr Kópavogi hóf æfingar hjá okkur í hand- knattleik. Hún kom langt að til æfinga, en lét það ekki aftra sér þó veður væru válynd á vetrum, alltaf mætti hún Krissa stundvíslega á hverja æfingu. Það duldist engum að þar var á ferðinni óvenju vel gerð telpa, komin frá góðu heimili, með hlýju og um- hyggju góðra foreldra í veganesti. Krissa brást okkur ekki, sem félagi var hún afartraust og heilsteypt, bar sterkar taugar til félagsins og félag- anna. Eftir að hún veiktist og átti erfiðara með að fylgja félögum sínum í leik og starfi, notaði hún hvert tækifæri til að afla sér upplýsinga um það se'm var að gerast innan Vals. Þá var gott að eigajafn góða trúnaðarvinkonu eins og hún Elín reyndist henni. Krissa var sérstæð í skapi, oft kom hún okkur á óvart með skoðunum sínum. Seint mun einn þjálfari hennar gleyma samtali er þeim fór á milli á einni æfingunni. Hann var þa að útskýra 76 fyrir henni atriði sem verið var að æfa fyrir áríðandi leik. Eitthvað vafðist það fyrir henni, og fannst of miklum tíma í sig eytt. Hún beindi orðum til þjálfarans og bað hann að vera ekki að tefja stuttan æfingatíma á því að segja sér til, heldur leggja áherslu á þær sem hefðu hæfi- leika til að framkvæma það. Þannig var Krissa, hún var raunsæ og vissi sín takmörk. Hún vildi umfram allt vera með, og félagsskapurinn var henni allt. Hún gat líka verið glettin og gáskafull, þess fengum við oft að njóta. Þá átti hún það til að gera grín að sjálfri sér. Að okkar dómi var Krissa vel gefin og átti auðvelt með að læra. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Tjörn- ina, og hóf síðan nám í Háskóla íslands, henni entist ekki heilsa og aldur til að ljúka þar námi. í Háskólanum steig hún sitt stærsta gæfuspor, þar kynntist hún eftirlifandi eiginmanni sínum Sigurði J. Vigfússyni, ættuðum frá Húsavík. í veikindum hennar reyndist Sigurður henni sá maður sem hún hafði valið sér. Við viljum að lokum votta eiginmanni hennar, for- eldrum og systkinum okkar dýpstu samúð. Blessuð sé minning Kristjönu Magnúsdóttur. Jóhannes Sigurðsson, heiðursfélagi Vals Þeir voru galvaskir piltarnir sem komu saman í húsi KFUM við Amtmannsstíg 11. maí 1911, til þess að stofna knattspyrnufélagið Val. Meðal stofenda var Jóhannes Sigurðsson sem fæddur var 8. apríl 1892 í Reykjanesvita, en faðir hans var vitavörður. Fæðinga- staður Jóhannesar er táknrænn, því lýsandi viti var hann að því er tók til að leiða fólk á guðs vegi. Jóhannes andaðist 1. nóvember s.l. Jóhannes Sigurðsson var kjörinn heiðursfélagi Vals við hátíðlegt tækifæri í sögu félagsins um leið og honum voru þökkuð margvísleg störf fyrir félagið á þess fyrstu árum. Minning frumherjanna þeirra sem lögðu fyrstu línurnar að framtíðarstarfi verður ætíð minnst með þakklátum huga Valsmanna í nútíð og framtíð.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Valsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.