Valsblaðið - 01.05.1979, Page 97

Valsblaðið - 01.05.1979, Page 97
Skýrsla Körfuknattleiksdeildar Vals frá 27/41978- 15/51979. Á aðalfundi körfuknattleiksdeildarinnar í apríl 1978 var Halldór Einarsson einróma kosinn for- niaður deildarinnar. Aðrir menn sem í stjórn voru kosnir skiptu með sér verkum sem hér segir: Hafsteinn Hafsteinsson varaformaður Auðunn Ágústsson gjaldkeri, Torfi Magnússon ritari, Sigurður Már Helgason meðstjórnandi. Varamenn voru kosnir: Helgi Gústafsson, Ólafur Thorlacius og örn Harðason. Vegna brottfarar Torfa er hann hvarf að námi við fþróttakennaraskólann að Laugarvatni tók Helgi við ritarastöðu og Haraldur Haraldsson tók stöðu Hclga í varastjórn. Fráfarandi stjórn hafði gengið frá cndurráðningu Hick Hockenos sem þjálfað hafði við góðan orðstý undanfarandi keppnistímabil og hafði því stjórnin heldur náðuga daga fram eftir sumri utan þess að staðið var fyrir sölutjaldi á 17. júní. Tókst þetta nokkuð vel og þess fremur vegna vasklegrar fram- göngu Sigurðar M. Helgasonar & Cosem létu ekki á sig fá boð og bönn löggæslunnar við Gagnfræða- skóla Austurbæjar er líða tók á nótt og business var búinn við Lækjartorg. Er líða tók á byrjun keppnis- tímabils juku menn við sig æfingar sem lítils háttar höfðu verið stundaðar og biðu komu þjálfarans. Rick kom síðan í byrjun september og tók sér ból- festu í íbúð knattspyrnudeildar að Meistaravöllum 7 og undi hið besta hag sínum í nokkra daga og tjáði nieðal annars formanni deildarinnar að sér litist niun bctur á sig í þessari íbúð en þeirri sem þau hjón- *n hefðu búið í árið áður. Þó fór svo eftir komu Ell- enar konu Ricks að þeim hjónunum þótti dvölin hér á landi óbærileg, og var þar ýmsu við borið. Hurfu þau hjón af landi eftir skamma dvöl og varð þess loks vart er sækja átti Rick til æfin°ar að kvöldi. Brottför Rick sem var svo fyrirvaralaus varð mönnum um verulegt áfall og til mikilla leiðinda þar sem við vorum örugglega allir sammála um að Rick væri réttur maður á réttum stað. Er þetta varð Ijóst fór ég undirritaður strax þá um kvöldið að finna Bob nokkurn Star umboðsmann leikmanna frá Banda- n'kjunum og leita þar hófanna með nýjan þjálfara/ leikmann. Eftir óhemju orðagjálfur frá hans hendi var ákveðið að þiggja hcldur aðstoð þjálfara ÍR- inga Paul Stewart sem kvaðst eiga félaga vestur í Bandaríkjunum sem gæti leist okkar vanda. Þessi niaður var Timothy Dwyer sem síðar átti eftir að reynast að mörgu leyti hinn ágætasti leikmaður þjálfari og hinn hressasti náungi. Árangur meistara- flokks varð nokkuð góður og unnust tvö mót, Reykjavíkurmót og hraðmót unglingalandsliðs. í yngri flokkunum ber helst að geta árangurs 3ja flokks sem sigraði í Reykjavíkurmóti. Allt bendir til þess að Tim Dwyer verði endurráðinn til Vals næst- komandi haust, og yrði þá um leið reynt að tryggja með viðeigandi ráðstöfunum að mætingar Tims á æfingar yngri flokka félagsins verði aðrar og betri en raunin varð á síðasta vetur. Tekjuaflanir voru með ýmsu móti, m.a. var gefin út leikskrá fyrir leiki meistarafiokks í úrvalsdeildinni, lagt var í happ- drætti, seldir fiugeldar og haldinn kveðjuleikur og síðar sama kvöld dansleikur fyrir Bandarísku leik- mennina sem hér dvöldust. Pétur Guðmundsson sem hér hafði dvalist um skeið í fríi frá liði Washing- ton State University lék með í þessum leik sem Valur vann eftir skemmtilega keppni. Hans þáttaka ístarf- inu þann tíma sem hann dvaldist hér á landi var öll- um til ánægju og aðeins synd að hann skildi ekki mega leika með í leiknum gegn K.R., þeim leik er að endingu réði úrslitum í mótinu. Endursamið var við fyrirtækiö Vilberg & Þorstein um auglýsingu á bún- ingunum og er samstarfið við þetta fyrirtæki mjög gott. Á keppnistímabilinu var tekin upp sú ný- breytni að gefa nokkrum úr hópi áhorfenda kost á að reyna körfuskot af tilteknu færi en að launum fengi sá er hitti, kjötskrokk frá Kjötmiðstöðinni Laugalæk, mæltist þetta vel fyrir. Með landsliðinu léku á síðara ári Ríkharður Hrafnkelsson og Kristján Ágústsson. Ekki verður svo við skilið en að þakka sérstaklega Ólafi Thorlacius fyrir hans starf sem liðstjóra, sem hann tók við af Einari Matthíassyni sem kaus að hætta vegna starfa í landliðsnefnd KKÍ. Einnigsér- stakar þakkir til þeirra bræðra Helga, Gústafs og Leifs sem ávallt hafa verið reiðubúnir að hlaupa undir bagga þegar þörf hefur krafist. Skýrsla Badmintondeildar 1978 - 1979 Á þessu starfsári, sem nú er að líða hafði deildin til umráða 52 badmintonvelli í viku hverri, það er í Valsheimilinu 32 velli, í Höllinni 8 velli og í TBR húsinu 16 velli. Á seinustu tveim árum hefur deildin orðið að sætta því, að tímar hennar í Valsheimilinu hafa verið skornir niður um 50%. Af þeim tíma, sem deildin hefur til umráða eru um 75% leigðir út til félagsmanna, en afgangurinn er nýttur af keppnis- fólki og undir unglmgastarf. Alls er félagar í badmintondeildinni nú um 140. Þó árangur keppnisfólks deildarinnar hafi ekki borið hátt í fjölmiðlum, hafa unnist ágætis sigrar í hinum ýmsu mótum og Valur hefur átt þátttakendur í öllum meiriháttar mótum í badminton. Deildin hefur séð um framkvæmd nokkra móta og eins hefur verið haldin firmakeppni. Um árangurinn er það að segja, að í janúar 1978 sigraði Hrólfur Jónsson á meistaramóti TBR í ein- liðaleik í A flokki og hálfum mánuði síðar sigruðu Ragnar Ragnarsson og Hrólfur Jónsson í tvfliða- leik á sama móti. Á Reykjavíkurmóti seinna um vet- urinn eignaðist Valur Reykjavíkurmeistara í einliða- leik í A fiokki, Ágúst Sigurðsson og hann sigraði síðan ásamt Guðmundi Adolfssyni í tvfliðaleik í A fiokki. Valur átti fólk í úrslitum í flestum greinum A fiokks á þessu móti. íslandsmeistara eignuðumst við í tvfliðaleik, en þar sigruðu Þórhallur Jóhannesson og Árni Sig- valdason og sigruðu þeir Valsmennina Gunnar Jónatansson og Guðjón Jónsson í úrslitum í deildar- keppninni sigraði Valur örugglega í Suðurlands- riðli í 2. deild, átti síðan að spila til úrslita um 1. deildarsætið við Siglfirðinga en sá úrslitaleikur fór aldrei fram af ýmsum ástæðum. Valur öðlaðist sætið í 1. deild án þess að úrslitaleikurinn væri leikinn vegna breytinga á fyrirkomulagi deildarkeppninnar. Valur sendi einn keppanda á Norðurlandamót unglinga í Noregi, Ágúst Sigurðsson, og stóð hann sig vel miðað við frammistöðu íslendinganna sem þar kepptu. Eftir þetta keppnistímabil hafði Valur eignast fimm nýja meistaraflokksspilara þá Hrólfi Jónsson, Ágúst Sigurðsson, Þórhall Jóhannesson, Árna Sig- valdason og Ásu Gunnarsdóttur. Sigurður Haraldsson var aðalþjálfari deildar- innar þetta keppnistímabil, en einnig fékk deildin danskan badmintonþjálfara, sem hingað kom á veg- um BSÍ. í vetur sáu Gylfi Óskarsson og Gunnar Jónatansson um þjálfun unglinganna, en Hrólfur Jónsson hafði eftirlit með þjálfun keppnisfólksins. Á seinustu tveim árum hefur unglingastarf deild- arinnar ekki gengið eins vel og skyldi, kemur þar margt til. Stjórn deildarinnar hefur sett sér það að meginmarkmiði að efla unglingastarfið og verður ráðinn fastur þjálfari til deildarinnar á næsta ári. Það hefur komið mjög illa við starfsemi deildarinn- ar, hve tímar hennar hafa verið skornir niður í Vals- heimilinu og verður vart gengið lengra í þeim efnum. Stjórn deildarinnar vill nota þetta tækifæri til að koma þcirri áskorun á framfæri til aðalstjórnar að bygging nýs íþróttahúss verði það mál, sem forgangs njóti næstu árin. Badmintoníþróttin er í örum vexti, æ fleiri iðka þessa íþrótt sem keppnisíþrótt, en þó hefur aukning orðið mest hjá þeim, sem hafa fundið hve íþrótt þessi er kjörinn til þess að halda sér í líkamlegri þjálfun. Stjórn badmintondeildarinnar er nú skipuð á eftirfarandi hátt: Hrólfur Jónsson, formaður. Jafet S. Ólafsson, gjaldkeri. Hörður Benediktsson, ritari. Þórhallur Jóhannesson, meðstjórnandi. örn Petersen, meðstjórnandi. í varastjórn: Ragnar Ragnarsson, Árni Sigvaldason og Ágúst Sigurðsson. 95
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.