Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1912, Síða 121
ALMANAK 1912
97
um hin næstu missiri, þangaö til áriö 1881, að hann fór
suður til íslenzku nýlendunnar í N.-Dakota, þar sem nú
er nefnd Mountain-byg'gð. Þar nam Jón land og varð
eigandi þess; eptir það nam Jón annað land vestur á Pemb-
inafjöllum og hafði þar bólstaðargerð. Árið 1891 fluttihann
ásamt fleirum vesturtil Alberta; hafði hann þá reynt ham-
ingjuna í Dakota, þessu frelsisins og framfaranna landi, en
hangið stundum niðan í hjólinu, eins og fleiri framsóknar
menn á þeim árum, sem miðuðu hærra en við hóf; samt
var það að Jón bar hrærri hlut frá borði Dakota, en sum-
ir aðrir, fjárhagslega skoðað; hafði heldur ekki utan'eitt
líf að verja. Þegar vestur til Alberta kom, valdi Jón sjer
bólstað á ómældu landi, vestanverðu Medecine-árinnar og
nam þar síðan land, eptir að landið var fullmælt; það var
gott búland og frítt; var Jón þar lengi síðan. Þegar Jón
búsetti sig í Alberta hafði hann efni nokkur, sem hann
flutti frá Dakota og jók við þau að góðum mun eptir að
hann kom til Alberta, svo að telja mátti, að hann væri
velmegandi maður; en er áleið rýrnaði fjárhagur hans, bar
tvennt til þess, það að hann var bilaðar að heilsu og því
síður fær um að duga sínu og hitt að hann var optast einn
síns liðs síðari árin og varð þá að láta skeika að sköpuðu
um hyrðing búpenings síns og ætla eg að það hafi meira
en nokkuð annað hnekkt hag hans. Árið 1903 seldi Jón
lausafje sitt og rjeðist austur til Ottawa og var þar nokk-
ur ár; eptir það seldi hann land sitt-til Gunnars Jóhanns-
sonar sem fyr segir. Eptir það höfðu menn litlar fregnir
af högum hans þar eystra. Þá var það, að hann þýddi á
ensku ágrip af sögu íslands og gaf hana út. Árið
1909 yfirgaf hann Ottawa, hjelt hann þá suður til Dakota
a fornar stöðvar og hefir verið þar síðan. Jón var niaður
skarpgreindur, hafði lesið margt og hugsað mikið, þótt
ekki yrði það alt að framkvæmd, hann var skemtinn og