Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1925, Page 51

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1925, Page 51
ÍÐUNN Vnging dýra og manna. 45 sér talsverða misbrúkun þessara nautnalyfja. Læknir einn, Politiman að nafni varð 140 ára og var þó töluverður drykkjumaður alla sína tíð. Slátrarinn Gascogne varð 120 ára gamall, en þó var sagt að hann hefði drukkið sig út úr venjulega tvisvar í viku. Þannig eru fleiri dæmi nefnd um drykkjumenn. Tóbaksmenn geta líka orðið gamlir. T. d. er það ann- álað um tvo 100 ára öldunga Ross og frú Lazenec, að bæði hafi verið mestu reykháfar. Að kaffikerlingar geti líka lifað nokkuð lengi, sýnir dæmi frú Elisabetar Durieux, sem varð 114 ára. Segir sagan, að hún hafi lifað nær eingöngu á kaffi og hveiti- brauðsmeðlæti og sjaldan drukkið minna en 40 bolla á dag. Það væri heimskulegt að halda af þessu, að áfengi, tóbak og kaffi séu meinlausar nautnir. Þetta sýnir að eins, að okkur brestur fullan skilning á hversvegna sumir verða gamlir en aðrir ekki. Vitanlega má með heilsusömu líferni og varkárni koma í veg fyrir fjölda sjúkdóma, en þrátt fyrir það verða ekki allir gamlir, sem temja sér slíka lifnaðarháttu. Hinsvegar er vert að geta þess, að mörg dæmi sýna að veiklaðir menn, dverg- ar, hálfvitar og krypplingar geta stundum náð mjög há- um aldri. Það liggur eftir þessu næst að halda, að langlífi sé að þakka einhverjum sérstökum eiginleikum ákveðinna líffæra líkamans. Og reynslan sýnir að langlífi gengur oft að erfðum. Margt bendir á að aðalatriðið sé, hraust- /ega bygðir innrensliskirtlar. Það eru þessir kirtlar, sem hver í sínu lagi og allir í sameiningu mynda þann vökv- unarsafa fyrir hold líkamans, sem einu nafni má kalla /ífsins elixír. Telja því sumir læknar trúlegt, að menn- irnir gætu í raun og sannleika orðið guðunum líkir í langlífi sem öðru, ef takast mætti að byrla slíkan undra-

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.