Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1925, Side 81

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1925, Side 81
IÐUNN Ritsjá. 75 án þess að hafa lært eitthvað í henni. Eg gríp þessi erindi af handahófi, til þess að gera Iesandanum úrlausn: Ólína hveður eftir að hafa lesið nýja bók: Nú ertu hrygg og sjúk mín sál og sér ei nema húm og tál, þér lokast lífsins vegir af ólYÍjan, sem eg þér las. Eg ætla að taka Matthías og sjá, hvað skáld mitt segir. Þú les hann, og þér líður vel, þú les hann, og þú skilur hel, þú les, þig langar yfir. Þú les, og kemst í Ijóssins geim, þú les, og elskar menn og heim. Þú Ies hann, og þú lifir. Fyrir þessar vísur vildi eg láta tvo þriðjungana af erfiljóðunum í Erfiminningu síra Matthíasar, og eg held minning skáldsins væri skaðlaus af skiftunum. Og þó hefir Ólína farið fram úr sjálfri sér með vísunni um Matthías látinn: — — — skáldum fækkar, landið lækkar, loksins sjást hér engin fjöll. Herdís kveður m. a. um veröldina: Hirðir lítt um þína og þig, þreytt um völl að glíma, aldrei nema sína og sig sér hún nokkurn tíma. Gjörist henni greiðug lund og gjafa opni hún skrínið, því er eins og hent í hund og hitt sé beint á trýnið. Þessar stökur eru líka eftir Herdísi:

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.