Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1929, Blaðsíða 7
IÐUNN
Einar H. Kuaran sjötugur.
329
á brýn, að hann fyrirgæfi allt og þurkaði með því út
allt réttlæti. En E. H. Kv. mun vera það jafn-!jóst og
andstæðingum hans, að undan afleiðingum verka sinna
hleypur enginn, þegar til lengdar lætur, þótt hann efist
á hinn bóginn um hæfileika mannanna til að kveða upp
fyllilega réttmæta dóma um aðra menn. Hann trúir því,
að hið guðlega réttlæti stjórnist af fullkomnum kærleika
og fullkomnum skilningi, og hann vill láta mannlegt rétt-
læti reyna að nálgast þá fyrirmynd. Og ekki mun það
fjarri sanni, að E. H. Kv. fyrirgefi svo margt einmitt af
því, að hann skilji svo margt: »Tout comprendre, c’est
tout pardonner* — (að skilja allt er að fyrirgefa allt).
Grunntónninn í trú E. H. Kv. er traustið á alverunni,
guði, sem kærleiksríkum föður. »Eg veit, að þú ert faðir
minn«, segir hann í hinum gull-fallega sálmi um »lífsins
fjölU. Þetta er einmitt innsti kjarninn í kristindóminum,
í trú Krists, þótt það virðist fjarstæða út frá venjulegri
reynslu í náttúrunni og lífinu, Og að vísu er það kjarn-
inn í flestum æðri trúarbrögðum, þótt það komi óvíða
jafnskýrt og greinilega fram og hjá Kristi. Og þessi
fjarstæða er trúuðum manni hinn æðsti og huggunar-
ríkasti veruleikur; hér skilur trúaðan og vantrúaðan. En
þessa trú hefur E. H. Kv. öðlazt að miklu leyti fyrir
sálarrannsóknirnar og spíritismann. —
Það yrðu ófullkomin minningarorð, ef ekki væri getið
um hjálpsemi og fórnfýsi E. H. Kv. gagnvart þeim
mönnum og málefnum, sem hann hefur tekið að sér.
Mætti um það margt skrifa, þótt ógert verði látið að
sinni. En við, sem höfum þann heiður og þau hlunnindi,
að vera vinir hans, getum ekki látið hjá líða að þakka
honum alla velvild hans og ástríki í okkar garð. Og öll
íelenzka þjóðin mun taka undir þá ósk okkar honum
til handa, að æfikvöld hans megi verða fagurt og heið-
ríkt, samboðið þeim mikla og glæsilega lífsdegi, sem
hann á að baki sér.
Jakob Jóh. Smári.