Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1929, Blaðsíða 74
396
Ungir rithöfundar.
ÍDUNN
menn »urðu doktorar á því«, sem miður var athugunar-
vert en gerðin á ritum Halldórs. Hér hefir ekki verið
um annað hugsað en að benda á nokkur höfuðatriði í
höfundarstarfsemi Halldórs Kiljans Laxness, um leið og
hans væri minst meðal annara nýjustu höfunda íslenzkra
bókmenta.
Að endingu skutu allir, sem yndis mega njóta við
lestur, hvattir til þess að lesa vandlega rit Halldórs,
einkum >Vefarann« og »Alþýðubókina«. Það er ómaks-
ins vert, þótt það jafnvel yrði ekki til annars en venja
af ýmsum lesendum þann bannsettan tepruskap við ný-
stárlegar hugmyndir og fágæt umræðuefni, sem háir
þeim við lestur og bókmentanautn. Jafnframt skal því
skofið til skólamannanna, hvort samvizka þeirra myndi
ekki þola það að ráðleggja að minsta kosti hinum
þroskaðri nemendum sínum að lesa þessar bækur sér
til »uppbyggingar«. Það er ekki að vita, nema sú tíð
komi, að sjálfsagt þyki að heimta til prófs í almennum
mentum svo eða svo mikla þekkingu í helztu ritum
Halldórs Kiljans Laxness, og þá væri svo notalegt fyrir
þá, sem upp á þessu tækju nú, að hafa með því trygt
sér »grafskrift með góðu mannorði« í menningarsögu
þjóðarinnar. Það skal hér með tekið fram til að greiða
fyrir þessu, að þessarar uppástungu minnar þarf þá ekki
að geta að neinu. Ég verð dauður.
Hallbjörn Halldórsson.