Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1929, Blaðsíða 88
410
Nýjar bækur.
IÐUNN
t. d. »Biössi Iitli á Bergi«, sem lýsir einstæðingsskap
umkomulauss smælingja á snilldarfagran hátt. Agætt kvæði
að dýpt hugsunarinnar er »Bifröst«, og fleiri slík mætti
telja. Gott kvæði er líka »Sorgir«, innilegt og bygt á
djúpri reynslu. »Sigurður skáld á Ondverðarnesi* er og
kröftugt og skáldlegf kvæði, einkum síðari hlutinn. Og
þannig mætti lengi telja.
]ón Magnússon er einkar-smekkvís á íslenzkt mál og
efnismeðferð alla. Hann er þegar kominn í röð beztu
ljóðskálda vorra, og þó að ekki séu öll kvæði hans jafn-
góð, þá eru þau öll smekkleg og vönduð. —
»Burknar« eftir Pétur Pálsson er fyrsta ljóðabók hans,
og er hann þó orðinn roskinn maður. Þessi kvæði bera
og vott um þroskaðan höfund, sem ávaxtar pund sitt vel.
Höf. er að vísu ekki stórfelt skáld, en kvæðin eru einkar-
lagleg og snotur og auðsjáanlega ekki kastað til þeirra
höndunum. Einkum eru mörg tækifæriskvæðin góð og
þrungin hugsun, og má þar fil dæmis nefna kvæðið unr
]ón Ben. ]ónsson o. fl. Mannlýsingar (svo sem dr. Gríms
Thomsens og Skúla fógeta) og náttúrulýsingar (t. d. »A
Fagradal«) eru h'ka ýmsar fallegar í »Burknum«. En
yrkisefnin eru sum veigalítil og ekki »blásið lífsanda í
nasir« þeirra.
»Ský« eftir Sigurjón Gudjónsson frá Vatnsdal eru
einnig fyrsta ljóðabók höfundarins, en hann er ungur
maður, — víst á milli tvítugs og þrítugs. Að vísu eru
byrjendamörk á bókir.ni, enda munu ýms af kvæðunum
vera ort, á meðan að höf. var fyrir innan tvítugt. En yf*r
kvæðunum hvílir yfirleitt þýður og ljóðrænn blær, og 1
sumum þeirra lyftir höf. sér upp í hæðir skáldskaparins,
eins og t. d. í »Dauðinn er innan veggja«, eða sér skáld-
legar sýnir og bregður upp myndum af þeim, t. d. í
líður á síðasta ljóðið«, þar sem þessar línur eru:
skilja’ okkur hrikaleg forlagafjöll — með forynju’ í hverjU
skarði*. — Aftast í bókinni eru nokkrar snotrar og «a'
kvæmar þýðingar. — Mér þykir líklegt, að vænta með’
góðs af Sigurjóni, er honum vex aldur og þroski.
»Mansöngvar til miðalda« eftir Jóhann Frímann er
kvæðabálkur út af Völsungasögu (höf. ritar jafnan »Vols'