Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1929, Blaðsíða 80
402
Heimskautafærsla.
IÐUNN
jöklar hafa þá ýzt út flóana og aðalfirðina. Skriðjöklar,
er komu út smærri firðina, er ganga inn úr flóunum og
aðalfjörðunum, hafa því ekki getað skafið upp úr botn-
um smærri fjarðanna og dýpkað þá lengra út en í mynni
þeirra, því að þar hlífði skriðjökull flóans eða aðal-
fjarðarins.
Inni í sumum aðalfjörðum er meira dýpi en í mynn-
um þeirra. Þannig er það t. d. um ísafjarðardjúp. Senni-
lega hefir sjávarborð staðið lægra, er skriðjöklar grófu
dældirnar í botna aðalfjarðanna en er þeir skófu upp
úr botnum aukafjarðanna eða hliðarfjarðanna og mynd-
uðu dældirnar í þá. Sjávarborð hefir þá jafnvel staðið
eðeins lágt frá brún grunnsævisflatarins eða landgrunns-
ins1)- Landgrunnið hefir þá verið hulið jökulbreiðu út á
brún. Þess vegna hafa skriðjöklar, er þokuðust út aðal-
firðina, ekki getað skafið nema upp úr botnum aðal-
fjarðanna og aðeins stutt út fyrir mynni þeirra. í mynn-
um þeirra urðu skriðjöklarnir að brjóta sér Ieið upp og
fram á ísbreiðuna á landgrunninu, er stóð að mestu
föst fyrir þeim.
Miklar líkur eru til þess, að firðir myndist á þennan
hátt í heimskautalöndunum nú2). Við strendur Victoriu-
lands, í heimskautabeltinu syðra, er ísfláki mikill (Ross
Barrier), mörg hundruð kilómetrar á breidd, er stendur
að mestu fastur fyrir skriðjöklunum, er koma af landinu,
Botninn hlýtur því að grafast dýpra niður undir skrið-
1) Landgrunnið er noltkurn veginn slétlur flötur úl frá ströndum
landsins, niður á hér um bil 200 m. dípi. Ur því snardýpkar.
2) The antarctic land of Victoria, by M. Zimmermann. Ann. Rep.
of the Smifhsonian Institulion 1909, bls. 342: Along Victoria Land
to the extreme south the immense glaciers of Shackleton and Barne
inlets tend by their movement to push the barriers (Ross Barrier)
away from Ihe land. There results from this a region of chaos;
the surface of the sheet undulates in long ridges, is rifled with
crevasses and with veritable chasms encumbered with a confusion
of glaciai débris and of new material fallen from the liltoral heighs
wich extend between the barriers and the land. But at 10 miles
from Ihe coast all of the inequalitties disappear and the monotonous
surface of the great snowplain wilhout ridge or crevasse extends
until lost to view.