Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1929, Side 23
IÐUNN
Dularfull fvrirbrigði í fornrilum vorum.
345
selrinn gekk þá niðr vit, sem hann raeki hæl; hann
barði þar til, at selrinn gekk svá niðr, at hann lamdi
saman gólfit fyrir ofan höfuð honum*.
Mér er það vitanlega ofurefli að segja nokkuð af eða
á um það, hvort þetta fyrirbrigði hefir í raun og veru
9erst. En minna má á það í þessu sambandi, að líkamn-
'Ugar eru alls ekki ávalt í mannslíki. Areiðanlegar skýrsl-
br eru til um líkamningar í líki ýmissa dýra. Hafi þarna
verið óvenjulega sálrænn kraftur á heimilinu — og
nikið bendir á að svo hafi verið — þá er það alls ekki
óhugsandi. að frásögnin um selshöfuðið kunni að vera
sönn.
Af Þóroddi bónda er það að segja, að hann drukn-
aði í ferðinni ásamt öllum mönnum sínum. Erfi var
drukkið eftir hann, og fyrsta kvöld erfisdrykkjunnar
Sengur Þóroddur í skálann og förunautar hans, allir al-
''otir. Menn urðu hræddir og stukku úr eldaskálanum,
en þeir Þóroddur sátu þar eftir, þar til eldurinn var út-
brunninn; þá hurfu þeir á brott. Þessu fóru þeir fram
öll kvöldin, meðan erfið stóð. Heimamenn vonuðu, að
bessu mundi af létta. En svo varð ekki. Kvöldið, sem
boðsmennirnir fóru, voru kveiktir máleldar að vanda.
^egar eldarnir tóku að brenna, komu þeir Þóroddur
'Hn, allir votir, settust við eldinn og tóku að vinda sig.
Qg nú bættist það við, að þeir sex, er áður höfðu dáið
á heimilinu, bættust við í þessa sveit. Þeir voru allir
nioldugir, skóku klæðin og hreyttu moldinni á þá Þór-
°dd. Heimamenn stukku úr eldhúsinu og höfðu enga
blýju það kvöld. Næsta kvöld var eldur kveiktur í öðru
húsi. Heimamenn vonuðu, að hinir framliðnu menn
niundu síður koma þangað. En þeim varð ekki að þeirri
v°n sinni. Allur hópurinn, þessir tólf dauðu menn, komu
þangað. Þá var þriðja kvöldið tekið það ráð að