Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1929, Page 31
ÍÐUNN
Dularfull fyrirbrigði í fornritum vorum.
353
komið væri inn hjá kristnum mönnum hleypidómum gegn
þessum tilraunum, þá virðast þær að minsta kosti stund-
um hafa verið fagrar athafnir. Fornrit vor eru að mörgu
leyti einstæð, og þar á meðal að því leyti, að eitt þeirra,
Þorfinns saga Karlsefnis, segir allgreinilega frá einum
slíkum tilraunafundi. Slík lýsing mun hvergi vera til
annarstaðar í bókmentum neinnar þjóðar. Eg hafði hugs-
að mér að lesa ykkur þá frásögn í kvöld. En þetta er
orðið lengra mál en svo, að eg vilji lengja það frekara
að neinum mun, og verð að láta mér nægja að vísa
ykkur til sögunnar.
En eitt langar mig til að taka fram að endingu. Þegar
þið athugið þau atriði, sem eg hefi drepið á, og önnur
dularfull atriði í fornritum vorum, sem eg hefi orðið að
sleppa, — finst ykkur þá ekki að hugsunarháttur for-
feðra vorra hafi legið nokkuð nærri spíritismanum?
Sannleikurinn er sá, að fornrit vor eru mörg ofin spíri-
tistisku ívafi frá byrjun til enda, þó að mönnum hafi
ekki á þeim tímum hugkvæmst að leita sannana í nú-
tíðarskilningi. Að undantekinni heilagri ritningu, standa
þau ef til vill nútíðar-spíritismanum næst af öllum ritum
liðinna tíma fram að 19. öldinni. Sumir hafa gert sér í
hugarlund, að spíritisminn sé sérstaklega óþjóðleg hugar-
stefna. Einhverstaðar hefi eg séð mér brugðið um það,
að eg hafi með spíritismanum flutt inn í landið ameríska
vitleysu, sem enga rót eigi í íslenzkri þjóð. Þá er Sæ
mundar-Edda og Heimskringla, Njála og Laxdæla, Eyr-
byggja og Biskupasögurnar mjög óþjóðlegar bækur. Og
eg ætla að bæta því við, að þá eru Passíusálmarnir með
sínum englahugmyndum og þjóðsögur ]óns Árnasonar
furðu óþjóðlegar bækur. Spíritisminn er ekki fundinn
upp á 19. öldinni. Hann tók þá þeim gagngerðum breyt-
ingum, að hann var gerður að rannsóknarefni og sann-
ana var farið að leita fyrir honum. En líklegast er hann
jafngamall viti mannanna. Og eg hygg, að ekki láti fjarri
að segja, að hann hafi, með sérstökum og óvenjulegum
hætti, verið ofinn saman við andlegt líf íslenzkrar þjóðar
alt frá öndverðu og fram á þennan dag.