Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1929, Page 37

Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1929, Page 37
idunn Fiðlarinn við Kóngsins Nýjatorg. 359 fiðlaranum og gerði honum orð að finna sig hið bráð- asta og spila fyrir sig. En þegar fiðlarinn skömmu síðar kom heim til K. N., var K. N. farinn í sólbað suður til Ítalíu. Næst þegar fiðlarinn kom heim til K. N., var K. N. í afmælisveizlu lengst úti á Friðriksbergi. Og seinast þegar fiðlarinn fór til fundar við K. N., var honum sagt, að því miður stæði svo illa á, að í dag væri afmælisdagur K. N’s. sjálfs, og öllum fjarskyldum mönnum væri stranglega bannaður aðgangur. Þá afréð fiðlarinn að fara aldrei framar að finna herra K. N. — En mánuði síðar fór hann með isbrjót austur yfir Eyrarsund, settist að í Málmhaugum og spilaði þar í hljómsveit í heilt ár. Þá datt honum í hug að reyna að komast alla leið suður til þeirrar borgar, er Praha nefnist og læra þar meira, en hann kom við í Kaup- mannahöfn, fekk atvinnu á kaffihúsinu við Kóngsins Nýja- torg og hefir spilað þar síðan. Hamingjan má vita, hvort hann kemst nokkurn tíma suður til Praha, því að nú á hann orðið fimm börn og segist ekki framar leggja upp grænan eyri. — III. Kveld eitt um daginn, í frosti og hríð, sátum við þrír saman á kaffihúsinu við Kóngsins Nýjatorg. Fólkið úr honunglega leikhúsinu var enn ókomið, og flest sæti voru auð. Þá spilaði hljómsveitin fyrir okkur Vorkveðju Qrieg’s, sem mér hefir alltaf fundizt eitt af furðulegustu listaverkum norræns anda. Eg heyrði snjóskriðurnar hrynja niður hlíðarnar og fyrstu vorlækina geysast úr helköldum klakadróma vetrarins — það var að því homið, þegar allt endar í algleymisfögnuði yfir tilver- verunni. — Þá opnuðust skyndilega litlar dyr, beint

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.