Lítið ungsmannsgaman - 01.02.1852, Side 50
50
orð. Jeg hef lesið í andlitssvip dóttúr yðar, að
mikil óhamingja vofir yfir yður. Ef liún gipt-
ist, þá erútsjeð umyður sjálfan, konu yðar og
son. Jessi vjssa pressaði ósjálfrátt út af mjer
þau orð, sem þjer nýlega heyrðuð. 3>jer getið
ekki með neinum ráðum afstýrt þeirri óliam-
ingju, sem yfir yður vofir, nema þjer viljið
vinna það til að farga dóttur yðar, til þess að
forða lifi sjálfs yðar, konu yðar og sonar. 3?.jer
skuluð láta hana í stóra körfu, og' sauma utan
um skinn, siðan flytja hana þegarí nótt útíhið
helga Gangesfljót; og þjer skuluð festa lukt
meðljóstýru ofan á körfuna; svo skuluð þjer fela
dóttur yðar guði á vald, þeim er Gangesfljót er
helgað.
Kaupmaðurinn trúði munkinum eins og nýju
neti, og þorði i engan máta að vefengja orð lians.
3>egar hann kom heirn til sín, var hann hryggur
og dapur, og um kveldið tók hann að starfa að
því, sem fyrir. hann var lagt.
Eptir þetta segir munkurinn lærisveinum
sinum svo fyrir, að þegar dimmt sje oröið,
skuli þeir ganga niður að fljótinu; og ef þeir þá
sjái körfu með lukt, skuli þeir draga liana uppá
bakkann, og færa honum hana heim, en fara svo