Eimreiðin - 01.05.1967, Qupperneq 37
AFMÆLISKVEÐJA TIL RICHARDS BECKS
125
þjóðrækni eða þjóðrækinn án þess að þeim komi dr. Richard Beck
í hug. Lýsir þetta vel, hverjum augum menn líta störf hans.
Að vonum hefur dr. Richard Beck lilotið ýmsar heiðursviður-
kenningar um dagana. Háskóli íslands og háskólinn í Grand Forks
hafa sæmt hann æðsta heiðri. Orður hefur hann hlotið margar og
heiðursfélagi er hann í mörgum menningar- og bókmenntafélögum.
Dr. Richard Beck kvæntist árið 1920 frú Ólöfu Daníelsdóttur frá
Helgustöðum í Reyðarfirði. Frú Ólöf lézt árið 1921. Árið 1925
kvæntist Richard öðru sinni Berthu (Unu Kristbjörgu) Samson.
Frú Bertha lézt árið 1958. Börn þeirra Richards og Berthu eru frú
Margrét Helen Hvidson og Richard Jr. verkfræðingur. Þriðja kona
dr. Richards Becks er frú Margrét (Brandson) Beck, og búa þau
hjón rausnarbúi í Grand Forks. Þau munu nú á næstunni flytja bú-
ferlum til Victoria í Brezku Columbíu.
Dr. Richard Beck er vinur rnargra stórhöfðingja. Þegar hann er
á ferðalagi, þá bjóða konungar honurn inn í hallir sínar. í Grand
Forks hefur það og fallið í hlut dr. Richards Becks að taka á rnóti
konungbornum mönnum. Slík störf fara honum vel úr hendi. Það
þykir okkur, sem óbreyttari hljótum að teljast, þó mest um vert,
að beri okkur að garði hjá dr. Richard Beck, en það ber mjög oft
við, þá er okkur tekið þar eins og konungum. Richard Beck er fyrst
og fremst mikill höfðingi vegna þess, að höfðingskapur hans og
hjálpsemi fara aldrei í manngreinarálit, og víst er um það, að hann
leggur öllum gott eitt til. Þó að orðaforði hans sé mikill, vantar
þar í öll lastyrði. Ef hátterni manna gengur alveg fram af þessum
granna mínurn og vini, þá segir hann stundum: „Er hann með ein-
hverjar kúnstir þessi?“ Lengra er svo ekki haldið í þá áttina.
Á sjötugsafmæli Richards Becks virðist ekki úr vegi að biðja
Eimreiðina fyrir kveðjur og árnaðaróskir honum til handa. Þær
kveðjur eru einnig ætlaðar konu hans frú Margréti. Vinir þeirra
hjónanna vænta þess, að þeim muni vel vegna í nýju heimkynnun-
um við Kyrrahafið.
Haraldur Bessason.