Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1967, Síða 55

Eimreiðin - 01.05.1967, Síða 55
I-'JÁRHAGSFORSENDUR ÁRNASAFNS 143 án þess að nokkur stafur sé til fyrir. Og nákvæmlega þau nöfn sem höf. telur sér henta, til þess að allt komi saman og heim. Þessi Vakra- Skjóna vinnubrögð höf. geta reyndar verið handhæg, en sem sönnun- araðferð þó harla lítils virði. Er það og mála sannast, að höfundi hefur ekki, þrátt fyrir allar þessar kúnstir og krókaleiðir, tekist að sanna það, sem hann ætlaði sér. Við erum í rauninni engu nær. Það hefði verið frekar í áttina, ef höf. hefði t. d. reynt að útskýra hvers vegna ekki er notað orðalagið „min förste Mand“, eða eitthvað á þá leið, og hvernig á því geti þá staðið, að dregið var á þriðja áratug að gera upp þessar kröfur eða skuldaskil frá tíð (eða vegna) fyrri mannsins, með alla þá peninga og ríkidæmi, sem frúin á að hafa haft yfir að ráða? Og er það ekki fremur ólíklegt, að þau Á. M. eða frúin hefðu farið að tala sérstak- lega um „den gode“ sáluga fyrri mann? M. a. upplýsir höf., bls. 12—13, að þegar síðast er um mann þennan vitað var hann einmitt að reyna að hafa fé undan konunni, eða gera hennar erfðahlut eftir hann minni, hvort sem honum hefir tekizt það eða ekki. Var af þeim, og reyndar fleiri ástæðum fremur ósennilegt, að hún færi að hæla honum, sizt í erfðaskrá hennar og seinni mannsins. Mér virðist því, að það liggi beinna við, að skilja erfðaskrárákvæð- ið á þann hátt, sem dr. Jón Þorkelsson hefur gert, og að frúin muni þess vegna ekki hafa skrifað undir með manni sínum eða meðan hann enn var lífs. Og þegar betur er að gáð, virðist margt benda til þess, að hún liafi alls ekki verið í húsinu, þegar Á. M. ,rskrifaði u?idir,“ og þar af muni stafa allt klandrið með erfðaskrána. Frúarinn- ar er hvergi getið í frásögnum af síðustu ævistundum Á. M., Jrað er Jón Grunnvíkingur og norska ráðskonan, sem vaka yfir hinum deyj- andi manni, en frúna er hvergi minnzt á. Og einungis með fjarveru hennar verður innrás Háskólans um morguninn skiljanleg og afsakan- leg. Enda gæti þetta og kontið heim við það, að frúin á síðasta árið að hafa verið í elli- eða sjúkravist annars staðar, hjá einum kóngsins skraddara, og á 400 rdl. meðlagi, (auk hinna stórrausnarlegu „handpen- inga“ frá Háskólanum, 1 rdl. á viku). í þessu framhaldi og að lokum vil ég benda á enn eitt atriði, sem ég hef ekki séð neina skýringu á, og er enda ekki viss um að menn hafi veitt eftirtekt. / eftirriti því af niðurl. erfðaskrárinnar, setJi Jón Grunnv. tekur uþþ í skýrslu sina, er einungis nafti Árna, en hins vegar ekki konu hans, Mettu Magnússon. Og á skrá þessa er vottað, að hún hafi, svo bú- •n, verið upplesin í Háskólaráði 5 dögum síðar, þ. e. án undirskriftar frúarinnar. Hafi hún skrifað undir síðar er Á. M. náttúrlega orðinn „salig, d. v. s. död“, eins og ég orðaði það í fyrirspurninni. Það athug- ast ennfr., að niðurlag „erfðaskrárinnar" er ekki hið sama í þessum afritum, svo sem sjá má af samanburði:
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.