Eimreiðin - 01.05.1967, Síða 62
Jeppe Aakjær og Guðmundur Ingi
eftir
Þórodd Guðmundsson frá Sandi.
I.
Á síðasta ári var liðin ein öld frá fæðingu józka skáldsins Jeppe
Aakjærs. Efalaust hefur aldarafmælis hans verið minnzt rækilega
af ýmsum, a. m. k. í heimalandi skáldsins, þó að mér sé lítið kunnugt
um það. Nýlega fékk ég í hendur 8. hefti af Nordisk Tidskrfit 1966
með athygiisverðri grein um Aakjær eftir Harry Andersen dr. phil.
Segir þar svo meðal annars:
„Jeppe Aakjær er eitt af stórskáldum Dana. Með ljóðagerð sinni
heldur hann fagurlega á lofti merki þjóðkvæðaskáldskaparins. Oss
koma ósjálfrátt í hug nöfn eins og Oehlenschláger, Blicher, Grundt-
vig, Hostrup, Chr. Richardt, Holger Drachmann, Björnson og
Robert Burns. Hann var gæddur þeirri gáfu að geta ort kvæði eða
ljóð. Það er mikil og örðug list. Nú er ekkert skáld til á þessu sviði,
sem kemst í samjöfnuð við Jeppe Aakjær.“ — Um þetta segir Aakjær
sjálfur í minningum sínum: „Ekkert danskt nútímaljóðskáld hefur
notað viðlagið eins og ég. Það hefði líklega tæpast gerzt án áhrifa
frá þjóðkvæðunum eða öllu lieldur frá dönsku barnaljóðunum.
Að því leyti lærði ég rnikið af Robert Burns, það er að segja af
þjóðkvæðunum, því að Robert Burns hefur naumast nokkurn tíma
skapað hrynjanda sjálfur, eins og kunnugt er.“
Jeppe Aakjær fæddist 10. september 1866 á Aakjær í Fly-sókn
við Skive á Jótlandi. Hann var af bændafólki kominn og ólst upp
í fátækt, en var ákaflega námsfús og brauzt til mennta að rniklu
leyti af sjálfs sín rammleik, fór til Kaupmannahafnar á 18. ári í
fróðleiksleit og tók þar undirbúningspróf með frekara nám fyrir
augum. Tveim árunr síðar, að loknu því prófi, fór hann aftur til
Jótlands og tók að flytja róttæk erindi. Hann var tekinn fastur
fyrir uppreisnar- og guðleysiskenningar, en fljótlega látinn laus.
Árin 1887-88 stundaði hann nám við lýðháskólann í Askov. Þar
hitti hann Björnsterne Björnson, sem þá kom þangað gestur og
Aakjær dáði mjög í æsku. Árið 1893 gekk Jeppe Aakjær að eiga
Marie Bregendal skáldkonu, en þau skildu 1902. Um það leyti