Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1967, Side 81

Eimreiðin - 01.05.1967, Side 81
MARGT DYLST í HRAÐANUM 169 karlmannsverk, sem ekki var áhættulaust, en húsmóðir hans tók af skarið með þessum orðum: — Það má ekki eetlast. til of mikils af óhörðnuðum unglingum. Bónda fanst allólíku saman að jafna og sagði svo: — Hann á eftir að harðna. Það hafði ekki farið fram hjá mér, að frá upphafi stutts samtals okkar var hann óvanalega mildur á svip, jafnvel brosleitur. Þá skildist mér fyrst, að skelin var ekki eins hörð og ég hafði haldið í fyrstu, og hver mundi hafa vitað það betur en hans góða og glaðlynda kona? En lítt grunaði mig þá, að ég ætti eftir að sjá þennan höfðingsmann reiðari en ég hafði nokkurn mann séð fyrr. Það var á sunnudegi og við höfðum sezt að matborði í stóru stofunni, sem náði hliðarveggja milli í húsi, sem herragarði hæfði. Þarna voru öll börnin, þeirra meðal gift dóttir, nraður lrennar og barn þeirra, og dóttir, yngri, heitbundin, nýkomin heim frá Kristjaníu, en svo hét Osló þá, og unnusti hennar var þarna líka, lautinant í hernum. Allir voru glaðir á góðum degi, en er menn höfðu neytt kjötréttar, veitti ég því allt í einu athygli, að dauðakyrð hafði dottið á, það var sem enginn þyrði að mæla, en bóndi renndi sínum arnhvössu augum frá einum til annars. Mér duldist ekki, að hann var ofsareiður, en gat ekki rennt grun í, hvað valdið gat reiðinni, — og svo hóf hann reiðilesturinn, talaði af alvöruþunga og napurri hæðni um borgarsiðina, sem væru að teygja anga sína út um sveitirnar. Og tilefnið var þá það, að í ljós kom við borðhaldið, að menn höfðu skilið eftir á diskunum, og kallaði bóndi það með fyrirlitningu „en larvskik fra byane“ — og vita mættu þau, að oft hefðu þeir, sem á undan voru gengnir og rutt höfðu braut- ina fyrir þau, gengið svangir til svefns, og svo sem til frekari áherzlu tók hann disk sinn og sleikkti og fór sér hægt. Dóttirin lieitbundna leit undan og enginn mælti orð og svo var matast áfram — í þögn. Ég man hve mikla önn ég þoldi fyrir þau, einkum konuna og dætur hennar, sem tóku þetta greinilega nærri sér eins og skiljanlegt var, og ekki var á þetta minnst síðar, nema að stúlkan, sú heitbundna, sem verið hafði í Kristjaníu, minntist á þetta við mig síðar, og sagði: — Fanst þér pabbi ekki hræðilegur? Minningunni um þetta atvik hefir skotið upp stundum, og ég hef þá reynt að skilja framkomu míns gamla húsbónda. Ég kynntist honum betur næstu vikurnar og öllu hans fólki, og honum og konu hans frá nýrri hlið, er þau tóku mig með sér til Kristjaníu, en þá um sumarið var þar mikil sýning haldin. Hún hófst 17. maí, til minningar um Eiðsvallarfundinn 1814. Höfðu þau mig undir verndarvæng sínum í þessari ferð og gistum við á heimili Stórþingsmanns í Osló og sátum þar
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.