Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.2000, Síða 15

Tímarit lögfræðinga - 01.11.2000, Síða 15
að í dómi skuli m.a. greina sakarefni, lýsingu málsatvika í aðalatriðum og rök- semdir dómara um niðurstöðu og viðurlög. í röksemdum skuli skýrlega koma fram hvað dómari telji sannað og með hverjum hætti. Dómari má ekki fara út fyrir kröfur aðila í dómi samkvæmt 1. mgr. 111. gr. laga um meðferð einkamála, nema um atriði sé að ræða sem honum ber að gæta af sjálfsdáðum, og hann má ekki byggja niðurstöðu á málsástæðu eða mótmælum sem hefðu mátt koma fram en gerðu það ekki við meðferð máls, sbr. 2. mgr. sömu lagagreinar. Sam- kvæmt 1. mgr. 117. gr. laga um meðferð opinberra mála má hvorki dæma ákærða fyrir aðra hegðun en þá sem í ákæru greinir né heldur dæma aðrar kröfur á hendur honum. Með þessum lagafyrirmælum er sagt hverju skuli gera grein fyrir í forsend- um dóma, hvernig beri að lýsa sakarefninu, á hvem hátt rökleiðsla verði byggð upp, á hvaða grundvelli leyst verði úr dómsmáli og að í dómi beri að taka skýra og rökstudda afstöðu til ákveðinna atriða. Undantekningar gilda um útivist- armál, sbr. 1. mgr. 113. gr. laga um meðferð einkamála, og mál sem dæmd eru samkvæmt skýlausri játningu ákærða eða að honum fjarstöddum, sbr. 2. mgr. 135. gr. laga um meðferð opinberra mála. Þessar undantekningar hafa ekki þýð- ingu fyrir efnið sem hér er til umfjöllunar. Rökstuðningi verður að haga með tilliti til reglunnar í 1. mgr. 116. gr. laga um meðferð einkamála en þar segir að dómur sé bindandi um úrslit sakar- efnisins milli aðila og þeirra sem koma að lögum í þeirra stað, um þær kröfur sem eru dæmdar þar að efni til. Samkvæmt 2. mgr. 137. gr. laga um meðferð opinberra mála bindur dómur ákærða, ákæranda og aðra um þau atriði sem þar eru dæmd. Dómur hefur fullt sönnunargildi um þau málsatvik sem í honum greinir þar til það gagnstæða er sannað, sbr. 4. mgr. 116. gr. laga um meðferð einkamála og 1. mgr. 138. gr. laga um meðferð opinberra mála. Vegna þessara reglna er mikilvægt að fram komi hvað lagt var til grundvallar við úrlausn málsins. Ef það er óljóst getur slíkt leitt til þess að erfitt verður að túlka hvaða þýðingu eða réttarverkan dómurinn hefur. Vandi getur hlotist af því ef deilt er um það eftir að dómur er fallinn hver úrslitin voru eða hvað lá til grundvallar þeirri niðurstöðu sem dómurinn kveður á um. Með skýrum og skiljanlegum röksemdum má koma í veg fyrir slík vandamál.22 I rökstuðningi þarf að koma fram allt sem nauðsynlegt er til að af því megi sjá hvað leiddi til niðurstöðunnar. Annað þarf almennt ekki að koma fram. Með rökstuðningnum verður þó að gera öllum atriðum tæmandi skil þannig að ekki þurfi að leita annað eftir upplýsingum eða útskýringum um það hvað réði nið- urstöðunni. Dómurinn verður að þessu leyti að geta staðið sjálfstætt. Með því verða röksemdimar fyrir niðurstöðunni skiljanlegar. Ljóst þarf að vera hver grundvöllur málsins er og dómur verður að vera byggður á lagalega traustum 22 Þór Vilhjálmsson segir á bls. 64 í Réttarfari III að oft sé erfitt að skilja að hina dæmdu kröfu og forsendur hennar. Hann nefnir dæmi um forsendu sem geti verið svo nátengd kröfunni að dóm- inn verði að telja bindandi um hana á sama hátt og um kröfuna. 181
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.