Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.2000, Side 17

Tímarit lögfræðinga - 01.11.2000, Side 17
málsástæðum“.24 Dómari er í aðalatriðum bundinn af því hverra sönnunargagna málsaðilar afla en samkvæmt 1. mgr. 48. gr. laga um meðferð opinberra mála skal dómur reistur á sönnunargögnum, sem færð eru fram við meðferð máls fyrir dómi, og samkvæmt 1. mgr. 46. gr. laga um meðferð einkamála afla aðilar sönnunargagna ef þeir fara með forræði á sakarefninu. Framangreindar reglur hafa áhrif á það hvernig dómari hagar röksemdum í hverju máli þar sem þær binda hann á ákveðinn hátt þegar hann leysir úr sakarefninu. Kröfur málsaðila og atvikalýsingin, sem málatilbúnaðurinn er reistur á, ráða því miklu um aðferðir og annað sem varðar röksemdir dómara en honum ber að leysa úr málinu á þeim grundvelli sem það er lagt fyrir dóminn. Af þessu leiðir að ekki verða settar fram einhlítar skilgreiningar á því hvernig rökstuðningi dómara verði almennt hagað þar sem aðferðin í hverju tilfelli ræðst að mestu af sakarefninu og málatilbúnaði aðila hverju sinni.25 Þrátt fyrir framangreindar reglur hefur dómari nokkur afskipti af málatilbún- aði aðila. Honum ber samkvæmt 3. mgr. 101. gr. laga um meðferð einkamála að fylgjast með máli í öllum aðalatriðum og spyrja aðila um hvert það atriði, sem honum þykir óljóst og kann að hafa þýðingu, og skal hann kosta kapps um að yfirlýsingar þeirra verði nægilega glöggar. Samkvæmt þessu leitar dómari skýringa hjá málsaðilum eftir þörfum og gætir þess að málatilbúnaður þeirra sé skýr og skilmerkilegur. Sama gildir í opinberum málum. Samkvæmt 3. mgr. 128. gr. laga um meðferð opinberra mála getur dómari beint til ákæranda að afla gagna um tiltekin atriði máls eftir því sem honum þykir nauðsynlegt til skýr- ingar á máli.26 I 2. mgr. 111. gr. laga um meðferð einkamála segir að sé atviks getið í framlögðu skjali en aðili hafi ekki hreyft því sérstaklega sem málsástæðu við flutning máls meti dómari eftir atvikum hvort sú málsástæða komi til greina. Þessi regla víkur ekki aðeins frá meginreglunni um forræði málsaðila á sakarefninu heldur getur hún einnig farið í bága við aðrar meginreglur réttarfars svo sem jafnræðisregluna og andmælaregluna. Reglan vekur því ýmsar spurn- ingar um réttaröryggi og hún getur leitt til vandamála vegna hagsmunaárekstra málsaðila. Af sömu ástæðu getur verið vandasamt að ákveða hvemig reglunni verði beitt og enn erfiðara verður en ella að gefa almennar leiðbeiningar í þeim efnum.27 Hafi málsaðili ekki gætt þess að byggja kröfu á atviki, sem kemur fram í skjali, gæti hann orðið fyrir réttarspjöllum. Dómari hefur heimild til að byggja 24 Þór Vilhjálmsson: „Rökfærsla í dómum og stjórnvaldsákvörðunum", bls. 380. 25 Þetta gæti verið skýringin á því hve fátítt er, a.m.k. hér á landi, að fram komi almennar réttar- farslegar leiðbeiningar um það hvernig rökstyðja eigi niðurstöður í dómsmáli. 26 Enn frekari undantekingar gilda í einkamálum þar sem málsaðilar hafa ekki á sama hátt forræði á sakarefninu, t.d. í málum vegna ágreinings um forsjá bama, sbr. 2. mgr. 62. gr. bamalaga nr. 20/1992, en um þau tilvik verður ekki fjallað hér. 27 Gunnar Aasland gerir grein fyrir sjónarmiðum í þessu sambandi í grein sinni: „Rettens stilling til partenes anfprsler i tvistemál", í TfR 1967, bls. 157-200. 183

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.