Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.2000, Síða 20

Tímarit lögfræðinga - 01.11.2000, Síða 20
innar frekar hér og er vísað til hennar um þessi og önnur atriði sem þar koma fram. Málinu var áfrýjað og í H 1987 129 segir að ákærði sé í ákæru saksóttur fyrir brot í opinberu starfi sem talið sé varða við 139. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, auk þess sem sakaratriði í I. kafla A og C séu einnig talin varða við 158. gr., sbr. 138. gr. sömu laga. Atferli ákærða í inngangskafla ákæru sé gagngert lýst sem broti gegn 139. gr. og er í dóminum vísað í orðalag ákærunnar. Hins vegar sé háttsemi ákærða hvorki lýst sem brotum gegn 247. gr. né 249. gr. hegningarlaga. Þegar af þeirri ástæðu komi eigi til mála að beita þeim ákvæðum, svo sem gert hafi verið í héraðsdómi, heldur verði málið dæmt á þeim grundvelli sem lagður hafi verið í ákærunni. Þar sem málsaðilar leggja grunninn að málinu samkvæmt framangreindum reglum er mikilvægt að það sé rétt gert. Þeim ber að greina kröfur og málsástæður „svo glöggt sem verða má“, svo og önnur atvik þannig „að samhengi máls- ástæðna verði ljóst“, en lýsing á þessu „skal vera gagnorð og svo skýr að ekki fari milli mála hvert sakarefnið er“ eins og fram kemur í d og e liðum 1. mgr. 80. gr. og 2. mgr. 99. gr. laga um nteðferð einkamála. Málsaðilum ber að gefa glöggar og greinilegar yftrlýsingar fyrir dómi, sbr. 3. mgr. 101. gr. sömu laga. Reglan unt skýran málatilbúnað þjónar margvíslegum tilgangi, m.a. þeim að unnt verði að reka málið í samræmi við aðrar réttarfarsreglur og að dómur verði réttilega lagður á það. Skýr málatilbúnaður er líka mikilvægur í ljósi þess sem áður sagði að dómari megi almennt ekki byggja niðurstöðu á öðru en því sem málsaðilar hafa byggt kröfur í málinu á. Þess vegna eiga málsaðilar að setja atvik fram í rökréttu samhengi þar sem aðalatriði eru greind frá aukaatriðum, þar sem þeir draga rökréttar ályktanir af því sem þeir setja fram og þar sem þeir greina skilmerkilega hver atvik þeir telji að hafi þýðingu að lögum, á hvern hátt og hvers vegna. Erfitt getur verið að sjá af málatilbúnaði aðila hverjar málsástæður þeirra eru. I sumurn tilfellum eru þær ekki tilgreindar skilmerkilega.29 Stundum er óljóst til hvers þær eigi að leiða að lögum og á hvern hátt eða hver tengslin eru milli þess sem sett er fram. Dæmi eru einnig um ógreinilega framsetningu á málavaxta- lýsingu, staðhæfingum, skýringunt og röksemdum málsaðila. Mikilvægt er að tilgreina málsástæður eins nákvæmlega og kostur er þannig að bæði gagnaðila og dómara megi verða ljóst hverjar þær eru. Tilvísun málsaðila til lagaákvæða eða réttarreglna hefur hins vegar aðra þýðingu vegna þess að dómari er ekki bundinn af lagatilvísunum, sem málsaðilar setja fram, á sama hátt og hann er bundinn af kröfum og málsástæðum þeirra.30 Þetta er mikilvægt að hafa í huga við málatilbúnaðinn. Ófullnægjandi málatilbúnaður aðila getur haft réttarfarslegar afleiðingar. 29 Poul Sorensen bendir á að ekki liggi endilega ljóst fyrir hverjar málsástæður aðila eru, aðallega vegna þess að þær hafi ekki jafn skýra merkingu og séu ekki tilgreindar á sama formlega hátt og kröfur. Juridisk Grundbog 3. Dommen-Sproget, bls. 72. 30 Á bls. 27-28 í Einkamálaréttarfari gerir Markús Sigurbjörnsson skilmerkilega grein fyrir því hvernig málsástæður aðila binda dómara við úrlausn málsins og hvers vegna hann sé ekki með sam- bærilegum hætti háður skírskotun þeirra til réttarreglna eða lögskýringa. 186
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.