Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.2000, Qupperneq 34

Tímarit lögfræðinga - 01.11.2000, Qupperneq 34
stöðu eða álits. í rökum felast því ekki endilega tiltekin sannindi. Rök eru ekki algild í þeim skilningi að þau séu óvefengjanleg.71 Rök eru hins vegar algild í þeim skilningi að sömu rök eiga við um sambærileg tilvik og leiða þau því til sömu niðurstöðu. Vandasamt getur hins vegar verið að greina hvenær tilvik eru sambærileg. Þegar rök eru færð fyrir niðurstöðu í þeim tilgangi að sýna fram á hvað hafi leitt til hennar skiptir máli að velja réttu rökin, það er að segja þau rök sem við eiga. Að velja viðeigandi rök er því veigamikill þáttur í rökfærslu. Sem al- menna leiðbeiningu í þeim efnum má segja að valið á röksemdum fari í megin- atriðum eftir tilefninu fyrir því að þær eru settar fram. Þetta á m.a. við um rök- stuðning dómsúrlausna.72 3. RÖKSTUÐNINGUR DÓMARA Þegar spurt er hvort setja megi fram almennar reglur eða viðmiðanir um það hvemig rökstyðja skuli niðurstöðu í dómsmáli verður að svara því bæði játandi og neitandi. Þetta er hægt að vissu marki. Það er ljóst að tiltekin atriði geta bundið dómarann varðandi rökfærsluna svo sem venjur og ákvæði í settum lög- um eins og þegar hefur komið fram. Á hinn bóginn em síðan margir ólrkir þættir sem taka þarf tillit til í rökfærslu dómara og því er erfitt að setja fram al- mennar viðmiðanir. Dómari þarf oft að samræma ýmis atriði þegar hann semur dóm og hann þarf margs að gæta í rökstuðningi fyrir dómsniðurstöðu. Niður- staða dómarans er fengin með mati á einstökum þáttum og samspili þeirra, heildarmati á því sem máli skiptir svo og með því að beita viðeigandi réttar- reglum á úrlausnarefnið. Aðferðir dómara eru því ekki alfarið háðar ákveðnum reglum og því er erfitt að setja fram almennar viðmiðanir. Dómarinn er á vissan hátt bundinn en getur að nokkru leyti valið um leiðir. Hann getur t.d. valið rökin og ákveðið hvemig hann setur þau fram þótt hann verði að gæta þess að gera 71 Páll Skúlason segir á bls. 84 í bókinni Hugsun og veruleiki að engin rök séu algild. Um rök megi ávallt deila og þau megi vefengja. 72 I þessu sambandi má benda á að skiptar skoðanir hafa verið á því fyrir hvern dómur er skrifaður eins og fram kemur í „Gagnrýni á dómstólana og forsendur dóma“ og „Um rök og réttlæti" eftir Hjördísi Hákonardóttur: „Rökfærsla í dómum og stjórnvaldsákvörðunum" eftir Þór Vilhjálmsson; „í bókahillunni. Það á ekki að semja dóm „fyrir“ einhvern" eftir Björn Þ. Guð- niundsson; „Rökstuðningur er ekki síst fyrir dómarann sjálfan“ eftir Jón Steinar Gunnlaugsson og „Rökstuðningur dóma“ eftir Garðar Gíslason, sbr. neðanmálsgrein 1. Því má hins vegar halda fram að tilefni rökstuðnings í dómi skipti mestu máli. Þór Vilhjálmsson segir á bls. 387 í greininni „Rökfærsla í dómum og stjómvaldsákvörðunum" að í dómi ætti að haga rökfærslunni eftir eðli viðfangsefnisins og því, fyrir hvem er skrifað. I grein Hjördísar Hákonardóttur: „Tungutak lögfræðinnar“ í Afmælisriti, Gizur Bergsteinsson níræður 18. apríl 1992, kemur fram á bls. 273- 274 að mál þess sem tali mótist alltaf af viðtakendunum og vísar hún til heimilda um þá staðhæfingu. Hún segir á bls. 85 í greininni ,Uegal Language: A Tool of Justice": „... the judge should write for a hypothetical party: a common man of reasonable judgement ...“. Magnús Thoroddsen segir á bls. 77 í erindinu „Samning dóma“ að dóma ætti að leitast við „að skrifa þannig, að hver læs maður með heilbrigða skynsemi megi skilja". 200
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.