Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.2000, Side 51

Tímarit lögfræðinga - 01.11.2000, Side 51
sem minnihlutinn teflir fram í rökstuðningi, eru ekki metin af dómendum sem stóðu að atkvæði meirihlutans. Væntanlega verður að líta svo á að dómendur hafi talið að þau skiptu ekki máli fyrir niðurstöðu sönnunarmatsins. Hafi dóm- endur hins vegar talið óheimilt að meta þau vegna reglunnar í 4. mgr. 159. gr. laga um meðferð opinberra mála, sbr. 4. mgr. 19. gr., hefðu þau rök þurft að koma fram í dóminum. I síðara málinu var í sönnunarmatinu tekin afstaða til þess hverjar ályktanir yrðu dregnar af því sem fram hafði komið, m.a. um atvik og aðstæður fjölskyld- unnar sem þar var um að ræða. Rétturinn hefur augljóslega átt í erfiðleikum með þetta mat en ólíkar röksemdir, ályktanir og áherslur meirihluta dómenda og minnihluta staðfesta það. Sérstaka athygli vekja þau rök, sem meirihluti dómenda tiltekur, þess efnis að á þeim tíma, þegar kæra fyrir meint brot kom fram, hafði komið upp ágrein- ingur um umgengni ákærða við yngri dóttur sína í kjölfar þess að hann hóf sambúð með annarri konu. Um þennan ágreining sagði móðir kæranda fyrir héraðsdómi að ákærði haft farið fram á að fá yngri dóttur þeirra eina til sín en það hafi hún ekki getað samþykkt eins og fram kemur í héraðsdóminum. Sam- býliskona ákærða sagði fyrir héraðsdómi að hún hafi orðið vör við ágreining um rétt ákærða til umgengni við yngri dóttur hans. Hann hafi komið á heimili hennar „og verið með henni þar. Þau hafi því farið að velta fyrir sér af hverju barnið kæmi ekki og væri með þeim, eins og henni hafi fundist eðlilegt“. Ágreining um umgengni verður m.a. að skýra í ljósi þessa. Svo virðist sem ekki megi draga aðrar ályktanir af framangreindu en þær að móðirin hafi ekki viljað að yngri dóttirin væri ein hjá ákærða vegna þess að hún hafi óttast um stúlkuna hjá honum í tilefni af atvikum sem hún lýsir í skýrslum og raktar eru í hér- aðsdóminum. Eðlilegt virðist einnig að líta svo á að ákærði hafi sóst eftir því að fá að hafa barnið í kjölfar þess að sambýliskonu hans þótti einkennilegt að barnið kom ekki til þeirra. Engar upplýsingar koma fram í dómum héraðsdóms og Hæstaréttar um að umgengnisdeilan hafi snúist um annað en ósamkomulag foreldranna um það hvort yngri dóttirin væri ein hjá ákærða en án þess þó að leiddi til umgengnisdeilu sem hafi verið til meðferðar hjá stjórnvöldum eða á annan hátt. Að minnsta kosti má halda því fram, með tilliti til þess sem hér hefur verið bent á, að erfitt sé að átta sig á því hvers vegna umgengnisdeilan var talin hafa áhrif á sönnunarmat um efni ákærunnar. Svo virðist sem frekari upplýsingar hefðu þurft að liggja fyrir um umgengnisdeiluna en þær sem koma fram í dómunum báðum, þ.e. héraðsdómi og dómi Hæstaréttar, til að unnt væri að draga þær ályktanir sem fram koma í dómi Hæstaréttar um þýðingu um- gengnisdeilunnar fyrir sönnunarmatið. Á sama hátt er óljóst af hvaða ástæðum ákvæði í skilnaðarsamningnum um umgengni feðginanna hefur haft áhrif á niðurstöðu dómenda um sönnun á þeirri háttsemi sem ákært var fyrir. Þá virðast allt of víðtækar ályktanir dregnar af samskiptum, sem lýst er í röksemdum meirihluta dómenda, milli ákærða annars vegar og kæranda, móður hennar og yngri systur hins vegar, og af bréfi, sem kærandi skrifaði ákærða, þegar litið er 217

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.