Tímarit lögfræðinga - 01.11.2000, Blaðsíða 61
ólíkum tegundum alþjóðlegra skuldbindinga til þess að ná tökum á þessu vanda-
máli. í greininni mun sérstaklega verða fjallað um stöðu mála á íslandi og
hvemig íslensk stjómvöld vinna að því að hrinda í framkvæmd hér á landi Fram-
kvæmdaáætlun um varnir gegn mengun sjávar frá landstöðvum.
2. HNIGNUN LÍFRÍKIS SJÁVAR OG ÞRÓUN HAFRÉTTAR
Það er fyrst nú á allra síðustu áratugum sem þjóðir heims hafa gert sér grein
fyrir mikilvægi heilbrigðs lífríkis sjávar fyrir allt líf á jörðu. Höfin gegna lykil-
hlutverki í kolefnishringrás lífsins, hafa áhrif á veður og tempra hitastig. Höfin
eru auk þess ein stærsta uppspretta fæðu og eggjahvítuefna á jörðinni.2 Til
skamms tíma var litið á hafið sem sameiginlega eign mannkyns án nokkurra
takmarkana. Hið ríkjandi sjónarmið í hafrétti var grundvallarreglan um frelsi á
hafi úti og þar með frelsi til að nýta auðlindir þess.
Grundvallarreglan um frelsi á hafi úti varð að meginreglu snemma á 19. öld3
og þjónaði þá hagsmunum hinna valdamiklu siglingaríkja þeirra tíma. Á þeim
tíma voru fiskveiðiskip og -tæki ekki afkastamikil á nútímamælikvarða og áhrif
þeirra á lífríki hafsins voru minni háttar. I seinni heimstyrjöldinni, og næstu ár-
um þar á eftir, áttu sér hins vegar stað róttækar tækniframfarir sem gerðu þjóð-
um heims kleift að uppgötva og nýta auðlindir hafsins með öðrum og mun af-
kastameiri hætti en áður hafði verið mögulegt. Því miður gerðu þessar tækni-
framfarir mönnum einnig kleift að menga hafið og ofnýta auðlindir þess.
Sú alvarlega hnignun lífríkis sjávar sem kornið hefur ljós á allra síðustu ára-
tugum, hefur leitt til umræðu og aðgerða á alþjóðavettvangi sem endurspegla
ný sjónarmið í hafrétti. Mengun sjávar hefur gegnt mikilvægu hlutverki í þeirri
þróun enda talin ein aðalorsök hnignunar lífríkisins. Aukin sönnun um skaðleg
og hugsanlega óafturkræf áhrif mengunar á lífríki sjávar, hefur sýnt fram á að
meginreglan um frelsi á hafi úti er ekki lengur þess megnug að vernda lífríki
sjávar og þar með hagsmuni þjóða heims. Hið hefðbundna hagkvæmnissjónar-
mið, sem endurspeglast hefur í venjurétti um frelsi á hafi úti, hefur því smám
saman vikið fyrir sjónarmiðum er taka meira mið af verndun og sjálfbærri nýt-
ingu hafsins og auðlinda þess.4
3. MENGUN SJÁVAR FRÁ LANDI
Ef litið er til uppruna mengunar sjávar eru helstu tegundir hennar eftirfar-
andi: mengun frá landi, mengun frá skipum, losun í sjóinn, mengun frá and-
rúmsloftinu og frá nýtingu sjávarbotnsins. Mengun frá landi er talin uppspretta
2 Magnús Jóhannesson ráðuneytisstjóri umhverfisráðuneytisins: „Verndun hafsins fyrir meng-
un“, ræða flutt hinn 30. október 1999 á ráðstefnu Landverndar um „Umhverfis- og náttúruvernd í
30 ár“. Hér eftir vísað til sem: Magnús Jóhannesson: „Verndun hafsins fyrir mengun".
3 Reglan á sér hins vegar sögu aftur til tíma Rómverja.
4 Juda, Lawrence: International Law and Ocean Use Management. New York 1996, bls. 103. Hér
eftir vísað til sem „Juda“.
22 7