Tímarit lögfræðinga - 01.11.2000, Síða 63
styrk í hafinu, en oftast mjög lágum.8 Tilhneiging þungmálma til að safnast
fyrir í lífverum getur verið hættuleg fyrir lífverur sjávar og neytendur sjávar-
fangs. Helstu uppsprettur þungmálma eru frá ýmsum iðnaði og umferð.
5. Olíuefni geta haft eituráhrif á lífríki hafsins, spillt búsvæðum, skemmt
sjávarfang og dregið verulega úr útivistargildi strandsvæða.9 Talið er að um
60% af heildarmagni olíuefna sem berast í hafið komi frá starfsemi í landi
(um 1,4 milljónir tonna árlega).
6. Næringarefni í of miklum mæli í lífríki hafsins geta leitt til hættulegrar
keðjuverkunar sem meðal annars getur leitt til dauða botndýra. Helstu upp-
sprettur næringarefna af manna völdum eru skólp, afrennsli frá matvælaiðn-
aði, húsdýrahald ásamt útskolun tilbúins áburðar frá landbúnaðarhéruðum.
7. Sorp í sjávarumhverfi getur haft ýmisleg neikvæð áhrif á og jafnvel eyðilagt
búsvæði í lífríki hafsins. Dýr geta flækst í sorpi, kafnað og orðið fyrir melt-
ingartruflunum. Auk þess veldur sorp á ströndum verulegri sjónmengun.
Opin brennsla á sorpi í landi, sérstaklega á ýmsum plastúrgangi, getur einnig
orsakað útstreymi þrávirkra lífrænna efna sem síðan geta borist til hafsins.
Mengun frá landi er ekki einungis viðamesta uppspretta mengunar sjávar
heldur getur hún einnig verið hættulegri og erfiðari við að ráða en aðrar teg-
undir mengunar. Mengunin kemur í hafið meðfram ströndum þar sem lífríkið er
fjölbreyttast, frjósamast og viðkvæmast fyrir röskun. Stöðug aukning útblásturs
og frárennslis eiturefna, t.d. frá ýmis konar iðnaði og landbúnaði, gerir það og
sérstaklega erfitt að greina uppsprettu mengunar og sýna orsakatengsl á milli
ákveðinnar starfsemi og tiltekinnar mengunar.10
Þrátt fyrir þekkt skaðleg áhrif mengunar sjávar frá landi hefur hún þó ekki
notið jafnmikillai' athygli á alþjóðavettvangi og ýmis önnur alþjóðleg umhverf-
isvandamál. Á undanförnum áratugum hafa ríki heims hins vegai' reynt að taka
á þessu vandamáli með ný lagasjónarmið að leiðarljósi sem fyrr er lýst.
4. ALÞJÓÐLEGAR REGLUR ER VARÐA MENGUN SJÁVAR FRÁ
LANDI
Síðastliðin þrjátíu ár hafa ýmsar jákvæðar framfarir orðið í samstarfi þjóða
um varnir gegn mengun sjávar þó langt sé frá því að tekist hafi að halda vanda-
8 Helstir þungmálraa eru kadmín (Cd), króm (Cr), kopar (Cu), kvikasilfur (Hg), nikkel (Ni), blý
(Pb) og sink (Zn). Arsen (As) er einnig oft talið fylla þennan hóp. Sumir þungmálmar eru nauð-
synlegir lífverum en geta haft eiturvirkni ef styrkur þeirra er of mikill, s.s kopar og sink. Aðrir
málmar, eins og blý, kadmín og kvikasilfur, hafa engu þekktu hlutverki að gegna í lífríkinu og hafa
eiturvirkni við lágan styrk.
9 Olía er safnheiti yfir ýmis efni s.s. jarðolíu (hráolíu), ýmis lífræn leysiefni, jarðolíuhluta smur-
olíu og ýmsar vaxtegundir.
10 R. M’Gonigle, Michael: „„Developing Sustainability“ and the Emerging Norms of Interna-
tional Environmental Law: the Case of Land-Based Marine Pollution Control". Canadian Yearbook
of International Law 1990. Vancouver 1990, bls. 173. Hér eftir vísað til sem „M’Gonigle".
229