Tímarit lögfræðinga - 01.11.2000, Side 65
4.2.1 Nota skal eign þannig að ekki valdi öðrum tjóni
Grundvallarreglan, um að nota skuli eign þannig að ekki valdi öðrum tjóni,
á rætur að rekja til rómversku grundvallarreglunnar, sic utere tuo ut alienum
non laedas (oft nefnd sic utere reglan). A alþjóðavettvangi hefur regla þessi
verið túlkuð með þeim hætti að ríki beri að forðast athöfn sem hætt er við að
valdið gæti alvarlegu tjóni innan lögsagnarumdæmis annars ríkis.15
Nokkrir alþjóðlegir dómar hafa byggt á þessari reglu. Niðurstaða gerðar-
dóms í hinu svokallaða Trail Smelter máli,16 túlkaði í fyrsta sinn hversu mikillar
varúðar ríki bæri að gæta er hætta væri á tjóni vegna mengunar út fyrir landa-
mæri. Niðurstaða gerðardómsins var sú að samkvæmt grundavallarreglum al-
þjóðaréttar væri ríki óheimilt að veita leyfi til athafna innan lögsögu sinnar er
ljóst væri að valdið gæti alvarlegu tjóni utan lögsögu þess.17 Grundvallarregla
þessi hlaut síðar stuðning af Alþjóðadómstólnum í hinu svokallaða Corfu
Channel máli18 og síðar af alþjóðlegunt gerðardónti í hinu svokallaða Lake
Lanoux máli19 og er í dag viðurkennd sem grundvallarregla í alþjóðarétti um
umhverfistjón almennt og ekki síst um mengun sjávar frá landi.20 Grundvallar-
reglu þessa er nú að finna í Stokkhólmsyfirlýsingunni, Meginreglu 21.21
Inntak þessarar grundvallarreglu er þó fremur óljóst og í framkvæmd getur
túlkun hennar verið breytileg. Erfitt er að skilgreina hvaða skyldur ríki ber að
uppfylla samkvæmt sic utere reglunni og því hefur hún haft fremur takmarkað
gildi og áhrif á sviði mengunar sjávar frá landi.22
4.2.2 Misnotkun réttinda og nágrannaréttur
í grundvallarreglunni um misnotkun réttinda felst að óheimilt er að nýta sér
réttindi í öðrum tilgangi en þeim er til var stofnað ef slíkt gæti valdið öðrum,
eða samfélaginu í heild, tjóni. Ohætt er að fullyrða að bann við misnotkun rétt-
15 Guruswamy, Lakshman D., Sir Geoffrey W.R. Palmer, Burns H. Weston: Intemational En-
vironmental Law and World Order. St. Paul, Minnesota 1994, bls. 407. Hér eftir vísað til sem
„Guruswamy".
16 Þar sem því var haldið fram að bræðsluofn, staðsettur í Kanada, hefði valdið umtalsverðu tjóni
á uppskeru og gróðri handan landamæranna, þ.e. í Bandaríkjunum. Trail Smelter Arbitration (U.S.
v. Can.) (1941), 3 U.N.R.I.A.A. 1938 (1949).
17 Orðrétt segir: „Samkvæmt grundvallarreglum alþjóðaréttar ... hefur ekkert ríki heimild til þess
að veita leyfi til athafna innan lögsögu þess er valdið gæti tjóni vegna gufu innan eða áleiðis til
[annars lögsagnammdæmis] þegar um er að ræða mál sem sýnt hefur verið fram á með skýrum og
sannfærandi sönnunargögnum að haft gæti alvarlegt tjón í för með sér“.
18 Mál það var tekið fyrir af Alþjóðadómstólnum og varðaði ábyrgð Albaníu vegna tjóns er bresk
herskip og áhafnir þeirra urðu fyrir er skipin rákust á neðansjávarsprengjur er þau sigldu eftir al-
þjóðlegri siglingaleið innan lögsögu Albaníu. í niðurstöðu dómsins er vfsað til þess, að það er
skylda hvers ríkis að leyfa ekki vísvitandi athafnir innan lögsögu sinnar er geta verið í andstöðu við
rétt annarra þjóða. Corfu Channel Case (U.K. v. Albania) 1949.1.C.J. 4.
19 Lake Lanoux Arbitration (Spain v. Fr.), 12 U.N.R.I.A.A. 281 (1957).
20 M’Gonigle, bls. 179.
21 Samþykkt á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um umhverfi mannsins í Stokkhólmi árið 1972.
22 Brubaker, bls. 64.
231