Tímarit lögfræðinga - 01.11.2000, Side 73
ákjósanleg nálgun til þess að ná tökum á þessu vandamáli. Sú nálgun ætti þó
ekki að útloka hina svæðisbundnu nálgun. Þrátt fyrir að svæðisbundna nálgun-
in megni ekki ná tökum á mengun sjávar frá landi upp á eigin spýtur, þá er hún
nauðsynlegur hluti af virku hnattrænu kerfi.
Hefðbundinn hnattrænn alþjóðasáttmáli, bindandi fyrir þjóðir heims, virðist
þó ekki vera í sjónmáli í náinni framtíð. A vegum Sameinuðu þjóðanna náðist
árið 1995 sátt um að þróa hnattræna framkvæmdaáætlun um vernd sjávar gegn
mengun frá landi (e. Global Programme of Action to Protect the Marine
Environment from Land-based Activities).54 Framkvæmdaáætlun S.þ. er ætlað
að taka til eftirfarandi málaflokka: (a) skólps, (b) þrávirkra lífrænna efna, (c)
geislavirkra efna, (d) þungmálma, (e) olíuefna, (f) næringarefna, (g) setflutn-
ings og mengunar sets, (h) sorps, (i) áhrifa á búsvæði og (j) meðhöndlunar og
eftirlits með skaðlegum efnum. Framkvæmdaáætlun S.þ. hvetur til samtvinn-
aðrar nálgunar á land-, svæðis- og hnattræna vísu til þess að vernda hafið gegn
mengun frá landi. Henni er ætlað að aðstoða einstök ríki við að hrinda í fram-
kvæntd aðgerðum, ein og sér eða í samvinnu við önnur ríki, gegn mengun
sjávar frá landi. I Framkvæmdaáætlun S.þ. er svæðisbundin samvinna talin
nauðsynleg þar sem sKk samvinna leiði til nákvæmari skilgreiningar og mats á
vandamálum innan ákveðinna svæða og eðlilegrar forgangsröðunar verkefna
innan þeirra. Víðtækari alþjóðlegri samvinnu er hins vegar ætlað það mikil-
væga hlutverk að byggja upp mannauð, auðvelda flæði tækni og þekkingar,
samvinnu og fjárhagsaðstoðar. Vegna sérstaks eðlis þrávirkra lífrænna efna er
hins vegar komist að þeirri niðurstöðu að nauðsyn sé á alþjóðlegu átaki til þess
að koma á kerfi er bindi þjóðir heims að lögum til þess að draga úr og/eða koma
í veg fyrir losun tólf tegunda þrávirkra lífrænna efna sem skilgreind eru sérstak-
lega og mest hætta er talin stafa af.
Framkvæmdaáætlun S.þ. er einungis ætlað að vera til leiðbeiningar en ekki
bindandi að lögum. í henni felst ráðagerð um nálgun þessa umhverfisvanda-
máls með því að flétta saman framkvæmdaáætlun einstakra ríkja og svæða í
eina heild. Hversu árangursrík þessi nýja nálgun verður á eftir að koma í ljós en
hér á landi hefur Hollustuvernd ríkisins þegar komið fram með tillögu um drög
um Framkvæmdaáætlun fyrir Island um varnir gegn mengun sjávar frá land-
stöðvum.55
5. ÍSLAND: MENGUN SJÁVAR FRÁ LANDI OG LAGAUMHVERFIÐ
í sjónum umhverfis ísland er að finna mengun sem kemur að hluta til frá ís-
landi en einnig frá öðrum löndum. Þrátt fyrir að til Islands berist mengandi efni
54 Framkvæmdaáætlun Sameinuðu þjóðanna var samþykkt af 110 þjóðum á vegum Umhverfis-
stofnunar Sameinuðu þjóðanna hinn 3. nóvember 1995. UNEP (UN. Doc (OCA)/LBAOIG.2/7 7).
Hér eftir nefnd Framkvæmdaáætlun S. þ.
55 Sjá tillögur Hollustuverndar ríkisins á heimasíðu stofnunarinnar á www.hollver.is.
239