Tímarit lögfræðinga - 01.11.2000, Side 78
um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Með tilvísan til þessara
laga hafa verið settar allnokkrar reglugerðir, ekki síst til varnar mengun vegna
innflutnings, geymslu og flutnings olíuefna.
I reglugerð nr. 35/1994 um varnir gegn olíumengun frá starfsemi á landi er
að finna reglur sem olíubirgðastöðvum, bensínstöðvum og öðrum aðilum sem
meðhöndla og geyma olíuefni ber að fara eftir. Samkvæmt þeim skal viðeigandi
endurbótum á olíubirgðastöðvum vera lokið fyrir árið 2005. Að mati Holl-
ustuvemdar ríkisins mun þá stómm áfanga verða náð en umræddar endurbætur
miða að betra eftirliti og mengunarvömum.
I reglugerð nr. 465/1998 um viðbrögð við bráðamengun sjávar er kveðið á
um fyrirbyggjandi aðgerðir, viðbrögð og aðferðafræði vegna bráðamengunar-
óhappa. Markmið reglugerðarinnar er að samræma þær aðgerðir sem beita þarf
þegar sjór og strendur mengast skyndilega vegna olíuslyss eða sambærilegra
óhappa. Hafinn er undirbúningur að allmörgum af þeim framkvæmdum og við-
bragðaáætlunum sem kveðið er á um í reglugerð nr. 465/1998. Að mati Holl-
ustuvemdar ríkisins er brýnt að ljúka hið fyrsta gerð viðbragðsáætlana vegna
bráðamengunar sjávar, uppsetningu mengunarvarnarbúnaðar og samnings um
aðkomu stofnana að bráðaóhöppum í samræmi við reglugerð nr. 465/1998 um
viðbrögð við bráðamengun sjávar.
Eftirlit með þessum málaflokki er í höndum Siglingastofnunar íslands, Holl-
ustuverndar ríkisins, Vinnueftirlits rrkisins og/eða hlutaðeigandi heilbrigðis-
eftirlits, alll eftir eðli málsins.
Að mati Hollustuvemdar vantar nokkuð upp á að mengunamppsprettur
olíuefna hérlendis séu vel þekktar og heildstæð vitneskja yfir málaflokkinn sé
til staðar. Hollustuvernd ríkisins leggur til í tillögum sínum að Framkvæmda-
áætlun Islands um varnir gegn mengun sjávar frá landstöðvum að tekin verði
upp tilkynningarskylda á olíuóhöppum á landi, rétt eins og er til staðar á sjó.
5.6 Næringarefni
Almennt er ekki litið á mengun vegna næringarefna við strendur íslands sem
vandamál ef frá eru talin afmörkuð svæði og tilvik. Það er vel þekkt að mikið
magn næringarefna er stundum losað hratt út í umhverfið í skamman tíma (t.d.
sláturhús, iðnaðarbú og dreifing áburðar) og getur slíkt valdið tjóni. Dæmi eru
um að mengun vegna næringarefna hér við land hafi kippt fótunum undan fisk-
eldisstarfsemi.
í reglugerðum nr. 785/1999 um starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem getur haft
í för með sér mengun, nr. 796/1999 um vamir gegn mengun vatns, nr. 798/1999
um fráveitur og skólp og nr. 804/1999 um varnir gegn mengun vatns af völdum
köfnunarefnissambanda frá landbúnaði og öðmm atvinnurekstri eru ýmis
ákvæði varðandi næringarefni og vamir gegn næringarefnaauðgun.
5.7 Setflutningar og mengun sets
Náttúrulegur setflutningur vegna framburðar er talsverður hér við land, aðal-
244