Tímarit lögfræðinga - 01.11.2000, Blaðsíða 79
lega vegna uppblásturs og vegna fallvatna sem bera með sér mikinn aur sem
rneðal annars vegna eldvirkni undir jöklum er mjög breytilegt að magni. Ekki
eru vel þekkt áhrif breytinga á setflutningum af manna völdum á lífríki og bú-
svæði við strendur landsins. Ber þar helst að hafa í huga dýpkunaráhrif hafna á
lífríkið. Af þeim takmörkuðu upplýsingum sem til eru má álykta að áhrifin séu
almennt ekki mikil.
Óbeint er fjallað um truflun á setflutningum vítt og breitt í lögum og reglu-
gerðum. Má þar meðal annars nefna náttúruverndarlög, landgræðslulög, skóg-
ræktarlög, lög og reglugerðir á sviði bygginga- og skipulagsmála og lög um mat
á umhverfisáhrifum.
Að mati Hollustuvemdai' ríkisins er erfitt að ná heildstæðri yfirsýn yfir þenn-
an málaflokk, meðal annars þar sem fleiri aðilar bera ábyrgð á eftirliti. Umsjón
með dýpkunarframkvæmdum hefur Siglingastofnun íslands og einstaka stærri
hafnir svo sem Reykjavíkurhöfn og Hafnarfjarðarhöfn en eftirlit með förgun
dýpkunarefna er í höndum Hollustuverndar ríkisins.
5.8 Sorp
Helstu uppsprettur sorps í sjó og á ströndum eru urðunarstaðir sem illa er
gengið um, ýmis úrgangur sem hefur fokið frá þéttbýli og úrgangur sem berst
með fráveitukerfum og fallvötnum til sjávar.67
Helstu lagaákvæði varðandi sorphirðu er að finna í lögum nr. 7/1998 um
hollustuhætti og mengunarvarnir, heilbrigðisreglugerð nr. 149/1990 með síðari
breytingum og reglugerð nr. 805/1999 um úrgang. í reglugerð um úrgang er
kveðið á um starfsleyfisskyldu móttökustaða sveitarfélaga, urðunarstaði og
sorpbrennslustöðvar auk almennra ákvæða um varnir gegn mengun af völdurn
úrgangs. Hollustuvemd ríkisins veitir starfsleyfi og nú er unnið að því að allir
förgunarstaðir fullnægi nauðsynlegum kröfum til þess að fá starfsleyfi fyrir lok
þessa árs.
Skýrt er tekið fram í lögum nr. 44/1999 um náttúruvemd að sveitarstjórnum
er skylt að sjá til þess að skip í fjöru séu fjarlægð þaðan. Um sjálfa förgunina
gilda m.a. ákvæði reglugerðar nr. 805/1999 um úrgang, reglugerðar nr.
807/1999 um spilliefni, heilbrigðisreglugerða, laga nr. 32/1986 um varnir gegn
rnengun sjávar, o.fl. Árið 1997 skipaði umhverfisráðherra starfshóp um förgun
skipa. Starfshópurinn hefur lokið störfum og skilað skýrslu um niðurstöður
sínar. Hópurinn leggur til að sett verði skýrari ákvæði í lög þannig að tryggt
verði að hægt sé að fjarlægja og farga skipsflökum. Hópurinn leggur einnig til
67 Skilgreiningu á því hvað felst í sorpi, öðru nafni heimilisúrgangi, er meðal annars að finna í
reglugerð nr. 805/1999 um úrgang. Þar er sorp skilgreint sem „úrgangur frá heimilum, til dæmis
matarleifar, pappír, plast, gler og hverskyns tæki sem safnað er með sorphreinsun sveitarfélaga".
Samkvæmt leiðbeiningum Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna um gerð framkvæmdaáætlana
felst í hugtakinu „sorp“ allt þrávirkt tilbúið eða meðhöndlað fast efni sem er fleygt, losað eða skilið
eftir í sjávar- og/eða strandumhverfi.
245