Tímarit lögfræðinga - 01.11.2000, Page 80
að lög nr. 421/1926 um skipsströnd og vogrek verði felld að nýrri lögum eða
felld niður. Að mati Hollustuvemdar rrkisins er nauðsynlegt að festa í lög að
eigendur skipa séu ábyrgir fyrir förgun þeirra og að eigendur skipa geri sér
grein fyrir því þegar við nýskráningu skipa.
Að mati Hollustuverndar ríkisins er sorp frá starfsemi í landi almennt ekki
stórt vandamál við strendur landsins og líklegt að á næstunni dragi enn úr
magni sorps í hafinu sem upprunnið er héðan frá landi vegna betri umgengni og
betri förgunarhátta.
5.9 Meðhöndlun og eftirlit með skaðlegum efnum
Tillögur Hollustuverndar að Framkvæmdaáætlun fyrir ísland fjalla einnig
ítarlega um meðhöndlun og eftirlit með skaðlegum efnunt. Þar er hugtakið
„skaðleg efni” notað sem samheiti fyrir öll efni sem geta verið skaðleg lífríki
hafsins. Undir hugtakið falla því eiturefni, hættuleg efni, lyf, olíur eða önnur
efni sem vegna eiturverkunar, geislavirkni eða annarra hættulegra eiginleika
geta valdið skaðlegum áhrifum á lífríki sjávar. Hollustuvernd lítur hér til
hvernig fyrirbyggjandi aðgerðir eru tryggðar hér á landi, þ.e. hvaða eftirliti inn-
flutningur slíkra efna, meðhöndlun þeirra og förgun er háð. Málaflokkur þessi
er mjög stór og heyrir undir ólíkar stofnanir hér á landi: Hollustuvernd ríkisins,
Vinnueftirlit ríkisins, Lyfjaeftirlit ríkisins, Geislavamir ríkisins og heilbrigðis-
eftirlit sveitarfélaga. Innan hvers sviðs gildir þó ákveðinn lagarammi þar sem
umfang og hlutverk eftirlitsaðila er skilgreint og afmarkað. Sífelld endurskoðun
á sér stað á gildandi reglugerðum á þessu sviði. Gildandi íslensk löggjöf á þessu
sviði hefur mótast mjög af löggjöf Evrópusambandsins. Ekki eru þekkt óhöpp
eða slys hér á landi sem rekja má til þess að gildandi lagaumhverfi hafi brugðist
en Hollustuvernd ríkisins leggur áherslu á í tillögum sínum að brýnt sé að vera
vakandi gagnvart því sem hugsanlega mætti fara betur, meðal annars varðandi
innflutning, framleiðslu, dreifingu, meðhöndlun og förgun skaðlegra efna og
varnir gegn slysum og óhöppum.
Að mati Hollustuverndar ríkisins er mengun sjávar frá landi almennt séð ekki
stórt vandamál hér við land. Afar mikilvægt sé aftur á móti að þeim stofnunum
sem ætlað er að sjá um eftirlit og þjónustu á þessu sviði sé veitt fjárhagslegt
svigrúm til þess að standa undir skyldum sínum. Eftirlit þeirra, samhæfing
þekkingar og aðgerða, eru lykilatriði þess að við fáum að búa áfram við lífríki
sjávar sem er með því hreinasta í heimi.
6. LOKAORÐ
Mengun sjávar frá landi er alvarlegt umhverfisvandamál um alla jörð. Þrátt
fyrir stærð og alvarleika vandamálsins voru þjóðir heims tiltölulega seinar að
taka við sér í baráttunni gegn þessari vá og hefur enn ekki tekist að ná tökum á
þessu vandamáli með fullnægjandi hætti. Alþjóðaréttur á þessu sviði er mjög
ungur og skammt á veg kominn. Réttarvenja og grundvallarreglur alþjóðaréttar
246