Tímarit lögfræðinga - 01.11.2000, Page 81
eru lítt mótaðar og varpa litlu ljósi á það hvaða reglur gilda hér að alþjóðarétti.
Þrátt fyrir ólíkar nálganir í alþjóðlegum sáttmálum hefur ekki tekist draga úr
þessu umhverfisvandamáli. Nálgunin hefur verið of brotakennd, ýmist tak-
markast við ákveðin svæði eða ákveðnar tegundir mengunar frá landi. Vegna
hnattræns eðlis mengunar sjávar frá landi eru hnattræn samræming og samhæf-
ing lykilatriði ef árangur á að nást í baráttunni við þetta umhverfisvandamál.
Framkvæmdaáætlun S.þ. tekur á þessu vandamáli með nálgun er tvinnar saman
nálgun á lands-, svæðisbundna og hnattræna vísu. Þrátt fyrir að Framkvæmda-
áætlun S.þ. feli ekki í sér að ríki heims verði bundin af henni að lögum, þá er
hún tvímælalaust hið umfangsmesta og mikilvægasta átak sem þjóðir heims
hafa gert í baráttunni gegn mengun sjávar frá landi. Það á eftir að koma í ljós
hvaða árangur hún mun raunverulega hafa í för með sér en til þess að hún skili
þeim árangri senr vonir standa til hefur verið talið afar mikilvægt að auka skiln-
ing á nauðsynlegum aðgerðum hjá alþjóðlegum þróunar- og fjármálastofnunum
til þess að þróunarríki geti tekið virkan þátt í átakinu.68
Mengun sjávar frá landi er af ýmsurn toga umhverfis ísland en almennt ekki
talin á alvarlegu stigi. Það er ánægjulegt að mengun við Islandsstrendur skuli
ekki vera meiri en raun ber vitni. Lög og reglugerðir er snúa að þessum mála-
flokki endurspegla það vandamál sem þeim er ætlað að glíma við, þ.e. þau eru
af ýmsum toga og margbrotin. Það er vandasamt verk að ná góðri yfirsýn yfir
lagarammann á þessu sviði en óhætt er að fullyrða að tiliögur Hollustuverndar
ríkisins að drögum að Framkvæmdaáætlun fyrir Island á þessu sviði létta það
verk. Segja má að Framkvæmdaáætlun Sameinuðu þjóðanna hafi nú þegar skil-
að góðum árangri hér á landi með þeirri ágætu samantekt. Það er afar mikilvægt
að við íslendingar höldum áfram að standa vel á verði ef við viljum njóta áfrarn
þeirra gæða sem hreint umhverfi hafsins veitir okkur - bæði efnahagslega og í
formi almennra lífsgæða. Minni háttar mengun sjávar af alvarlegum toga, eða
einungis grunur um slíkt, getur haft mjög alvarlegar afleiðingar í för með sér.
HEIMILDASKRÁ:
Birnie, Patricia, og Alan E. Boyle: International Law and the Environment. New
York 1992.
Brubaker, Douglas: Marine Pollution and International Law - principles and
practice. London 1993.
Davíð Egilsson, Elísabet D. Ólafsdóttir, Eva Yngvadóttir, Helga Halldórsdóttir, Flosi
Hrafn Sigurðsson, Gunnar Steinn Jónsson, Helgi Jensson, Karl Gunnarsson,
Sigurður Á. Þráinsson, Andri Stefánsson, Hallgrímur Daði Indriðason, Hreinn Hjart-
arson, Jóhanna Thorlacius, Kristín Ólafsdóttir, Sigurður Gíslason og Jörundur
Svavarsson: Mælingar á mengandi efnum á og við Island. Niðurstöður vöktun-
armælinga. Starfshópur um mengunarmælingar. Reykjavík 1999.
68 Magnús Jóhannesson: „Verndun hafsins fyrir mengun".
247