Tímarit lögfræðinga - 01.11.2000, Side 83
A VIÐ OG DREIF
FRÁ LAGADEILD HÁSKÓLA ÍSLANDS
DEILDARFRÉTTIR FYRRI HLUTA ÁRS 1999 OG HÁSKÓLAÁRIÐ
1999-2000
1. ALMENNT
Á haustsmisseri 1999 var nemendafjöldi í lagadeild sem hér segir: Á fyrsta
ári 202, á öðru ári 52, á þriðja ári 53, á fjórða ári 64 og á fimmta ári 50, eða
samtals 421 laganemi auk 9 erlendra laganema og 16 annarra nema. 50,4%
nemenda í lagadeild voru karlar og 49,6% konur.
Við lagadeild starfa nú tíu prófessorar, tveir lektorar og fjórir aðjúnktar auk
fjölda stundakennara. Aðrir starfsmenn lagadeildar eru kennslustjóri, skrif-
stofustjóri og alþjóðasamskiptafulltrúi.
Á háskólaárinu 1999-2000 voru haldnir 9 deildarfundir, 4 kennarafundir og
6 námsnefndarfundir í lagadeild.
2. BREYTINGAR Á LAGANÁMI
Á haustmisseri 1999 var tekin upp ný og gjörbreytt námsskipan í lagadeild
með upptöku einingakerfis og afnámi hlutaskiptingar. Þessi nýja námsskipan
gildir um alla stúdenta sem hófu nám við lagadeild frá og með haustinu 1997
þar sem stúdentar, sem voru á öðru og þriðja ári laganáms haustið 1999, óskuðu
þess skriflega að fá að gangast undir einingakerfið.
Á haustmisseri 2000 var í fyrsta sinn boðið upp á stutta, hagnýta námsleið
við lagadeild fyrir aðstoðarfólk lögfræðinga, svokallaða lögritara. Um er að
ræða þriggja missera nám, 45 einingar, sem byggist á námskeiðum úr lagadeild,
viðskipta- og hagfræðideild, félagsvísindadeild og heimspekideild.
3. INNRI MÁLEFNI LAGADEILDAR
3.1 Húsnæðis- og tækjamál
Haldið hefur verið áfram endurbótum í Lögbergi, húsi lagadeildar, sem og á
tölvu- og tækjakosti deildarinnar, en þeim endurbótum hefur miðað hægt vegna
takmarkaðra fjárveitinga til deildarinnar. Hefur lagadeild þó notið höfðinglegra
styrkja til tækjakaupa frá Hollvinafélagi lagadeildar, Lögfræðingafélagi íslands
og Lögmannafélagi Islands.
Heimasíða lagadeildar var opnuð formlega 2. október 1999 á málþingi laga-
deildar, sem haldið var til heiðurs dr. Ármanni Snævarr prófessor áttræðum.
Umsjónarmaður heimasíðunnar er Kolbrún Linda Isleifsdóttir, kennslustjóri
lagadeildar, og slóð heimasíðunnar er http://www.hi.is/nam/laga/
Á haustmánuðum 2000 var ákveðið að bjóða upp á vinnuaðstöðu í Lögbergi
fyrir doktorsnema í lögfræði, fræðimenn, gestafyrirlesara, aðjúnkta og stunda-
kennara við lagadeild. Vinnuherbergi þetta hefur fengið heitið Lögvísindastofa
og er þar aðstaða fyrir fimm fræðimenn.
249