Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.2003, Síða 39

Tímarit lögfræðinga - 01.04.2003, Síða 39
mótin 1900 er langur vegur. Sess fullveldishugtaksins í sjálfstæðisbaráttunni er sá að hafa í raun lokið henni þegar þjóðarétturinn opnaði íslendingum viður- kennda leið til fullveldis og Danir voru reiðubúnir til að gefa íslendingum eftir fullt vald í eigin lögsögu. Af því sem ég hef hér rakið sést að fullveldi hefur aldrei merkt einfaldlega það sama og sjálfstæði. Merking þess hefur alla tíð verið rædd frá ýmsum sjónarhomum í opinberri umræðu hér á landi, en ávallt í skýru samhengi við þróun þjóðaréttar og alþjóðlegra samskipta. Það er í senn þetta samhengi við þróun þjóðaréttar og margræðni hugtaksins í íslenskri umræðu fyrri tíðar sem yfirleitt fer forgörðum þegar fullveldi er beitt sem pólitísku slagorði. Fullveldi hefur frá upphafi, þ.e. frá 1. desember 1918, haft tvíþætta merk- ingu: Annars vegar er vísað til stöðu íslands í alþjóðasamskiptum sem ríkis er beri réttindi og skyldur að þjóðarétti, fari með bundið fullveldi eins og önnur ríki heims. Hins vegar til stjómskipunar ríkisins, ríkisvaldsins og hverjir skuli með það fara og hvemig skuli með það farið. Að því leyti var Konungsríkið Island, eins og það var nefnt frá 1918 til 1944, beint framhald af stjórnskipunar- sögu Danmerkur með einkennum sem sum áttu rætur í Konungalögunum en flest voru niðurstaða stjómfrelsisbyltingar 19. aldar í Evrópu. 3.4 Fyrirbærið yfirþjóðlegt vald og opin stjórnarskrárríki Eftir síðari heimsstyrjöld voru gerðar breytingar á stjómarskrám víða um lönd sem gerðu ráð fyrir annars konar þátttöku í alþjóðlegum stofnunum en fram að því hafði tíðkast. Opnunarákvæði komu inn í stjórnarskrárnar.11 Þau heimiluðu tilgreint framsal valds til alþjóðlegra stofnana í tilteknum tilgangi friðar og alþjóðasamvinnu og oft með auknum meirihluta á þjóðþingi eða þjóðaratkvæðagreiðslu til samþykktar tiltekins alþjóðasamnings. Það var snemma almennt viðurkennt að aðild að Evrópubandalögunum fæli í sér framsal á fullveldi. Stjómarskrárbreytingin í Danmörku 1953 er til marks um það, en með þeirri stjómarskrárbreytingu voru Danir m.a. að búa sig undir að geta orðið aðilar að Evrópubandalögunum auk þess sem horft var til atriða í stofnsáttmála Atlantshafsbandalagsins (NATO) og Sameinuðu þjóðanna. í Lýðveldisstjómarskrá fslands, lög nr. 33/1944, var ekkert tekið á þessu atriði en litlar sem engar efnislegar breytingar voru gerðar á stjómarskránni í það sinn. Þegar ísland gerðist aðili að Sameinuðu þjóðunum var lagt fram á Alþingi ítarlegt lögfræðiálit Einars Amórssonar og Gunnars Thoroddsen um áhrif aðildar á fullveldið, einkum ákvæðanna um Öryggisráðið.41 Um aðildina að NATO urðu afar harðar deilur, sem kunnugt er, og brigsl um landráð gengu í allar áttir. Engin sambærileg lögfræðileg greinargerð var lögð fyrir Alþingi um fullveldi í það sinn. 40 Slík ákvæði komu í stjómarskrá Frakklands 1946, Ítalíu 1947 og Hollands um svipað leyti. í Noregi ekki fyrr 1962 svo dæmi séu tekin. 41 Alþt. 1946, B-deild, bls. 2 o.áfr. 33
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar: 1. Tölublað (01.04.2003)
https://timarit.is/issue/313973

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.

1. Tölublað (01.04.2003)

Gongd: