Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.2003, Page 46

Tímarit lögfræðinga - 01.04.2003, Page 46
Sambandslögin 1918 kváðu á um einingu ríkisvalds og sjálfdæmi íslands í fullveldismálum, sbr. kafla 4.1. Einingu ríkisvalds má lýsa með hinni almennu lögmætisreglu sem er grunnregla íslenskrar stjómskipunar og stjómsýsluréttar. Reglan vísar til uppbyggingar stjórnskipaninnar, þ.e. að allt vald stafar frá hinu æðsta valdi (sbr. 9. gr. stjskr. nr. 9/1920) og þar fellur hún saman við regluna um rétthæð réttarheimilda í stjómskipunarrétti. Lögmætisreglan varðar löggjafarvaldið að því leyti að lög verða ekki sett nema í samræmi við stjómarskrá og reglugerðir verða ekki settar nema þær hafi lagastoð. Hún varðar framkvæmdarvaldið að því leyti að framsal valds er einungis heimilt frá æðra stjómvaldi til lægra setts stjómvalds og í samræmi við lög. Hún varðar dómsvaldið, sbr. 59. gr. sem kveður á um að skipun dómsvalds verði eigi ákveðin nema með lögum, en einkum 61. gr. stjómarskrárinnar þar sem segir: „Dómendur skulu í embættisverkum sínum fara einungis eftir lög- unum“. Af ástæðum sem í sjálfu sér em fremur frceðilegar en stjórnskipulegar skipuðu sett lög öndvegi lengst af þeim tíma sem Island hefur verið fullvalda ríki. Hér hefur vildarrréttarstefna verið ráðandi í lögfræði, þ.e. sú kenni- setning að lög séu fátt annað en ákvarðanir Alþingis og að Alþingi geti að mestu ráðið því hvað sett sé í lög.63 Þessi áhersla á löggjafann og athafnir hans kemur fram í ýmsu, t.d. tregðu Hæstaréttar til að taka afstöðu til stjórnskipulegs gildis laga en sú tregða hefur raunar verið á miklu undanhaldi síðustu ár. Efnisþættir lögmælts ríkisvalds eru þær valdheimildir sem árið 1918 voru nefndar fullveldismál. I kenningu Bodins og þeim stjómskipunarhugmyndum sem á eftir fylgdu, raunar allt fram á þessa öld, héldust slíkar valdheimildir meira eða minna hinar sömu.64 Slíkri upptalningu verkefna sér enn stað í lýð- veldisstjómarskránni og hefur lítt eða ekki breyst á gildistíma stjórnarskrár fyrir Island."5 Samkvæmt bókstaf stjórnarskrárinnar í 2. gr. fer forseti Islands með löggjafarvald ásamt Alþingi, skipunarvald samkvæmt 15. og 20. gr., gerir samninga við önnur ríki samkvæmt 21. gr., fellir niður saksókn og veitir undan- þágur frá lögum. Allt er þetta vald skýrt svo að ráðherrar framkvæmi það. Á hinn bóginn gefur þetta hugmynd um inntak fullveldisins, þau verkefni sem talin voru tilheyra ríkisvaldinu. 62 Sjá Dóra Guðmundsdóttir: „Gagnrýnin (laga)hugsun og nýjar áherslur í lögfræðum". Úlfljótur. 4. tbl. 1995, bls. 385-390 og Sigurður Líndal: Orðræða um lögfræði, sama heimild, bls. 437-438. 63 Þetta er afskaplega einfölduð framsetning. Sjá íslenska gagnrýni á vildarréttarstefnu Garðar Gíslason: „Er valdbinding höfuðeinkenni á lagareglum?" Ármannsbók. Rvík. 1989, bls. 149-164. Sennilega er varhugavert að fella íslenska réttarframkvæmd eindregið undir nokkra eina slíka kenningu, því að þrátt fyrir að orðræða sé vildarréttarleg kann veruleikinn að vera annar. A.m.k. hafa fordæmi, venjur og eðli rnáls vegið þungt í dómum hér á landi. 64 í Konungalögununt 1665 voru tilgreindar valdheimildir (eða „fullveldismál") konungs þessar: Lagasetningarvaldið, skipun embættismanna. hervaldið, vald yfir kirkjunni og samningar fyrir hönd ríkisins. I danskri stjómlagafræði ber enn við að rætt sé um kongelige prœrogativer, sérrétt- indi konungs, og má telja það grein af sama meiði. Sama á við um norskan rétt. 65 Olafur Jóhannesson nefnir það eiginlegt ríkisvald sent í stjómarskránni er fengið tilteknum aðil- um. Ólafur Jóhannesson: „Stjómarskráin og þátttaka í íslands í alþjóðastofnunum". Tímarit lög- fræðinga. 1. hefti 1962, bls. 7. 40
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.