Árbók Háskóla Íslands

Volume

Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1918, Page 98

Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1918, Page 98
98 sá siðavandi æ þvi hygnari og vandaðri í ráði sínu og fram- ferði. Þannig þroskast sjálfsvera mannsins æ meir og meir í einhverja ákveðna átt, eftir því sem vaninn verður ríkari og eftir því sem lengra liður, en fyrir bragðið verður mað- urinn að ákveðnari og ákveðnari persónu eða »manntegund«, hvort sem hún er nú talin ill eða góð. En það er líka nokkur munur á þessum persónum i sálfræðilegu tilliti. Þær eru misánauðugar eða misfrjálsar, enda farnast þeim rnjög misjafnlega eftir því, hvaða hugðum þær þjóna. Nautnaseggurinn og gjálífismaðurinn fylgir girndum sínum i blindni og verður að síðuslu ánauðugur þræll þeirra. En hinn hyggni maður og gætni gefur sjer jafnan tóm til íhug- ana og velur jafnan þann kostinn, sem hann telur beslan. I5ví verður hann herra en ekki þræll girnda sinna. Hinn velur í blindni, en hann opnum sjónum. Og því hygnari og gælnari, sem maðurinn er, því fleiri möguleika eygir hann, en því viðtækara verður valið og hann að sama skapi frjáls- ari í vali sínu. Þ'ví er það svo satt, sem segir í Hávamálum: »Byrði hetra — berat maðr brautu at — en sé mannvit mikit«. Þvi að mannvitið gerir mann frjálsari og óháðari i breylni sinni og getur samfara siðvendninni jafnan sagt manni, hvern kostinn maður eigi helst að velja. En annað, sem er ekki minna um vert, leiðir og af þessu sama. Keipakindin, kenjaklápurinn og nautnaseggurinn og yfir- leitt allir þeir, sem fara eftir dutlungum sínum og stundar- girndum, smáleysasl i sundur og fara í mola, og öll skap- gerð þeirra er hrunin og komin í rústir, áður en þeir vita í.jálfir af. Ástríðumaðurinn aftur á móti, hver sem hann er, og hvort sem ástríða hans snýst til auðsöfnunar, valda eða melorða, er eins og sigjósandi hver, sem ef lil vill gýs hærra og hærra, en hjakkar þó oftast í sama farið og ávinnur sjer það eitt að hlaða sjer jafnan hærri og hærri strokkinn. En hinn spaki, siðavandi maður er eins og sí- streymandi lind, er brýtur sjer sífelt nýjar brautir og magn- ast æ því meir sem lengra líður, uns hann að lokum í fylling sinni er orðinn að þeirri miklu móðu, sem, eins og komist er að orði í Goethe’s: Mahomets Gesang, rennur: — sigri hrósandi aö sævi fram. Þótt nú sjálfsvera mannsins þróist í einhverja ákveðna átt, þá er alls ekki þar með sagt, að henni fari fram. Þróun og framþróun er alveg sitt hvað. En hvenær fer þá manninum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106

x

Árbók Háskóla Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.