Uppeldi og menntun - 01.07.2008, Blaðsíða 43
43
ÁSdíS HReFnA HARAldSdÓTTIR, SIgRún AðAlbJARnARdÓTTIR
það væri ókostur í fari kennara ef hann væri ósanngjarn og léti alla líða fyrir einn, að
hann legði of mikla heimavinnu fyrir nemendur og útskýrði námsefnið illa. Um þetta
skrifuðu nemendur: Að fá punkt fyrir smá mas og þrjá í viðbót fyrir að segja sína skoðun og
mótmæla er fáránlegt. Þegar þeir öskra yfir allan bekkinn út af einum (…) nemanda! annar
segir: Sá sem setur fyrir allt of mikla heimavinnu. Og sá þriðji: Ef hann útskýrir bara uppi á
töflu og fer geðveikt hratt yfir allar reglur og svona. Nokkur hluti nemenda (11%) nefndi
að það sviði undan móðgunum og niðurlægingu kennarans eins og sjá má á orðum
þessa nemanda: Þoli ekki þegar kennari niðurlægir mann þegar maður spyr að einhverju
asnalegu. annar nefndi: Það fer líka óstjórnlega í mig þegar þeir fara að gagnrýna nemendur
sína og niðurlægja þá. Það er bara sorglegt.
Líkt og með helstu kosti kennarans má flokka hugmyndir nemenda um ókosti hans
í persónulega þætti (dæmi: leiðinlegur, ósanngjarn), viðmót (dæmi: reiður og pirraður,
öskrar á nemendur, mismunar nemendum, skammar, móðgar eða niðurlægir nem-
endur) og kennslufræðilega þætti (dæmi: of strangur, hefur of mikla heimavinnu, út-
skýrir illa).
Aldurs- og skólamunur
Fram kom nokkur munur eftir aldri á skoðunum nemenda á ókostum kennara. Ekki
skipti máli hvort í hlut áttu stúlkur eða drengir. Rúmlega helmingi fleiri yngri nem-
endur (23%) en eldri (12%) nefndu óþægindi þegar kennarinn öskraði á þá, χ2 (1, n
=161) = 3,49, p<0,05. Einn tíu ára nemandi skrifaði: Mér finnst verst þegar hún skammar
okkur og öskrar, þá fær maður hausverk. Fjórtán ára nemandi sagði: Kennari sem fær köst
og öskrar í stað þess að tala um málið með rólegum hætti.
Hlutfallslega fleiri eldri nemendur (23%) en yngri (5%) lögðu áherslu á að kenn-
arinn mismunaði ekki nemendum og gerði ekki upp á milli þeirra, χ2 (1, n =161) =
10,14, p<0,001. Einn tíu ára nemandi sagði að sér fyndist ekki gott … þegar þeir eru
ekki jákvæðir gagnvart þeim sem eru undir meðallagi. Og fjórtán ára nemandi skrifaði: Og
þeir sem dæma suma nemendur strax og þá er bara fast í hausnum á þeim að þeir nemendur
eru leiðinlegir og svo eiga þeir aðra uppáhaldsnemendur. Sömuleiðis minntust hlutfalls-
lega fleiri eldri nemendur (20%) en þeir yngri (3%) á mikilvægi þess að kennarinn
útskýrði námsefnið vel, χ2 (1, n =161) = 11,25, p<0,001. Þeir vildu að kennarinn ræddi
um námsefnið og útskýrði betur ef þörf væri á. Eldri nemandi skrifaði: … og útskýri
allt námsefni vel og ef maður skilur ekki strax, ekki reiðast og segja að maður hafi ekki verið að
hlusta.
Ekki kom fram afgerandi munur á viðhorfum nemenda í skólunum tveimur til þess
hvað þeim félli síst hjá kennara. Fleiri nemendur í nýja skólanum en í rótgróna skól-
anum nefndu þó að þeim líkaði illa þegar kennari móðgaði og niðurlægði nemendur
(18% á móti 4%), χ2 (1, n =161) = 8,15, p<0,05.
Góður kennari – Spurningakönnun
Niðurstöður úr spurningakönnuninni sem lögð var fyrir 9. bekkina (fjórtán ára) benda
til að nemendurnir séu sammála um nokkur mikilvæg atriði sem þeir telja einkenna