Búnaðarrit - 01.01.1947, Page 25
BÚNAÐARRIT
19
halda fund með stjórnarnefndinni. Ég dvaldi tvo daga
á Hólmi og kynnti mér eftir föngum framkvæmdir,
sem þar höfðu verið gerðar, og alla aðstöðu.
Vil ég gefa stjórn Búnaðarfélags Islands eftirfar-
andi upplýsingar:
Valdimar Runólfsson rekur búið á eigin ábyrgð.
Hefur liann haldið húsum vel við. Ræktað allmikið í
túni og að því er virðist stundað búskapinn af hagsýni
og dugnaði. Hefur Valdimar því á allan hátt farið
vel með fasteign þá, er liann fékk í hendur frá Bún-
aðarfélagi Jslands.
Talsvert hefur Valdimar unnið að viðgerð land-
búnaðarvéla og verkfæra. Engir lærlingar hafa þó
enn verið teknir til náms. Valdimar hefur því sjálfur
slarfað að þessu með sonum sínum.
Valdimar hefur þetta siðastliðið ár haldið áfram við
að fullgera verkstæðishúsið. Það verk er nú komið á-
leiðis sem hér segir:
Kjallari hússins er full frágenginn. Valdimar er bú-
inn að setja þar niður trésmíðavélar, allar helztu vél-
ar, sem nota þarf í venjulegu trésmíðaverkstæði. Vél-
ar jiessar hafa kostað yfir 20 Jnísund krónur. Sjá
nánari sundurliðun á meðfylgjandi fylgiskjali.
Á fyrstu iiæð hefur verið innréttuð vinnustofa, þar
sem ætlazt er til, að að minnsta kosti 8 nemendur
geli unnið að trésmíðum ýmiss konar. Að mestu er
fullgengið frá jjessari hæð liússins, en j)ó eftir ýmis-
legt smávegis. Vinnustofa j)essi er vistleg og virðist
geta farið ágætlega um nemendur þar við störf sin.
Á annarri hæð er nokkuð komið áleiðis að innrétta
4 lítil svefnherbergi nemenda og tvær stórar stofur,
sem ætlazt er til, að verði setustofa pilta og kennslu-
stofa. Allmikið er óunnið við jiessa liæð hússins. Sömu-
leiðis er eftir að múrhúða húsið utan. Allur kostnaður
v*ð lnisbygginguna er fullar 73 þúsundir lcróna, en