Búnaðarrit - 01.01.1947, Síða 70
64
BÚNAÐARRIT
annað en tilraun með kílræsi og hnausræsi, er fram-
kvæmd var að tilhlutun verkfæranefndar ríkisins.
Vatnshæðarmælingar hafa nú verið gerðar i 1 ár,
og fer meðaltal þeirra hér á eftir: cm cm
niður niður
á vatn á vatn
l.umf. 2. umf.
1. Hnausræsi 10 metra bil ..................... 78.1 67.1
2. Kilræsi 10 — — 57.6 36.4
3. — 8 — — 72.3 41.1
4. — 6 — — 75.1 53.4
5. — 3 — — 75.1 59.5
Tilraunin er aðeins með tveim endurtekningum, og
er þetta meðaltal af 18 mælingum. Mælingarnar eru
gerðar mitt á milli ræsa. Tilraunin virðist henda í þá
átt, að 6—8 m milli kílræsa samsvari 10 m bili milli
hnausræsa. Eins og sést al' ofanrituðum tölum, hefur
1 umferð tekizt vel, og framræslan þar virðist í gctðu
lagi (sjá nr. 1 og 3—4). Aftur er árangurinn verri við
aðra umferð, enda tókst ekki ræslan með kílnum eins
vel vegna ójöfnu á landinu. Dýpt hnausræsanna var
höfð 1—1.1 m, en ldlræsin voru 80—85 cm djúp. Á
Tumastöðum í Fljótshlíð voru gerð kílræsi á sama tíma
og á Sámsstöðum, og 5 m bil milli ræsa. Virðast þau
hafa flest tekizt vel og landið þornað í hili. Um end-
ingu á þessari ræsagerð er ekkert hægt að segja enn
þá, en búast má við, að þau endist ekki eins vel og
vel gerð hnausræsi. Við þessa ræsagerð var notaður
5 þuml. þykkur kíll, en á Tumastöðum 6 þuml. kíll.
Kilplógurinn var dreginn af beltisdráttarvél, T. d. 9,
og virtist fullmikil álag.
Ræktunin.
Ræktunarland stöðvarinnar hefur aukizt um 5 ha
bæði árin, svo það er nú 38 lm, er skiptist á tún, korn-
og fræakra og grasrækt.