Búnaðarrit - 01.01.1947, Page 78
72
BÚNAÐARRIT
Tegundir Framleitt 19U. Tala rann- Gróhraöi Grómagn 1000 fræ
sókna pct pct g
Túnvingull 2 70.0 75.0 1.003
Sauðvingull . . .. 1 58.0 82.0 1.066
Háliðagras 1 55.0 78.0 1.000
Hávingull 1 59.5 70.5 1.840
Mjúkfax Vo.ó 7ÍÍ.3 4.114
Eins og sjá má af þessu yfirliti, hafa allar grasteg-
undir náð ágætum þroska ba*ði árin, og grómagnið er
sæmilegt. Allt fræið var selt til túnræktar vorin 1945
og 1946 með nokkurri íblöndun af erlendu fræi, eink-
um vallarfaxgrass og vallarsveifgrass. Hafa þessar
blöndur það ég veit til, reynzt yfirleitt vel, og hér í
stöðinni gefið ágæt tiin.
Eins og að undanförnu er unnið með úrval í tún-
vingul, og voru um 1200 plöntur til ræktunar í sumar,
og var þar gerl framhaldsúrval, en fræ af beztu stofn-
unum innan þessara plantna verður sáð til fræræktar
n. k. vor.
1 ráði er að koma upp grasfrærækt úti á Rangár-
vallasandi, og hefur það verið undirbúið nokkuð.
Tilraunir, sem gerðar hafa verið þar siðan 1940,
benda til þess, að sandsvæðin þroska fyrr grasfræ en
venjuleg moldarjörð, en til j)ess að sandjörðin sé not-
hæf fyrir þessa framleiðslu, þarf að hefta að mestu
sandfok. Næstu ár skera úr um það, hvort unnt verður
með viðunandi fjárhagslegum árangri að rækta þar
grasfræ.
Garðræktin.
Unnið hefur verið að garðyrkjutilraunum með lík-
um hætti og áður, eru það einungis kartöfluræktartil-
raunir. Hefur bæði árin 1945 og 1946 verið % af kart-
öflulandinu í tilraunum. Eins og yfirlitið að framan
sýnir. hafa kartöfluakrarnir verið 1.2 ha. livort árið.