Búnaðarrit - 01.01.1947, Side 87
BÚNAÐARRIT
81
Símskeyti þetta var samstundis sent sendiráðinu í
Washington og þ. 15. júlí barst eftirfarandi símskeyti
þaðan:
„UNRRA viðurkennir kaupin, en ber fyrir sig al-
gerum fjárskorti. Hefur samt fyrirlagt UNRRA í Lond-
on að útvega fé og gera ráðstafanir til að afskipa
fyrsta farmi, um 900 lirossum, og helzt einnig öðrum
farmi. — Reynum ýtrast til að framkoma efndum á
samningi, en gerið ekki ráðstafanir á frekari útflutn-
ingi, unz séð verður, hvort UNRRA getur borgað. —
Þeir hafa afturkallað kaup á 35000 hrossum í Banda-
ríkjunum. — Þetta eru alger samningsrof, en ókleift
að framkoma ábyrgð.“
Þann 23. júlí tilkynnir svo sendiráðið í Washing-
ton, að UNRRA þar hefði fyrirskipað, að tekinr yrðu
tveir farmar strax.
Þann 24. júlí símar sendiráðið í London, að UNRRA
þar staðfesti að hafa fengið fyrirmæli um að ganga
frá fjárhagshlið á kaupum 1700 lirossa.
Þann 1. ágúst barst svo að síðustu eftirfarandi sim-
skeyti frá London:
„UNRRA hefur simað til Wasliington, að lnín geti
ekki ráðstafað sterlingspundum til greiðslu á hross-
unum, og á velti, hvort Washington geti lagt fram doll-
ara. — Enn fremur verði Washington að sjá um skip-
rúm.“
Símskeyti þetta var strax sent til Wasliington, en
ekkert svar hefur borizt þaðan enn þá.
Þótt ekki sé endanlega gengið frá þessu máli, telur
landbúnaðarráðuneytið það vera í þeirri óvissu, að
ekki verði lijá því komizt, að hændum sé gert það
kunnugt, þar sem vitað er, að ýmsir þeirra hafa hald-
ið stóðhrossum í heimahögum i sumar vegna vænt-
anlegra markaða.
Hins vegar er fyrirsjáanlegt, að enda þótt hrossin
yrðu keypt og flutt út, þá muni markaðirnir ekki verða
0