Búnaðarrit - 01.01.1947, Blaðsíða 146
140
B Ú N A Ð A R R I T
því að ég íók við stjórn þess. Þann tíma, sem ég dvaldi
þarna nyrðra, bárust mér ýmsar fyrirspurnir um
mjólkurmálin, og svaraði ég þeim flestum, en vitan-
lega gat ekki verið um fullkomna leiðbeiningarstarf-
semi að ræða, þar sem stjórn mjólkursamlagsins tók
svo mikinn hluta af starfi mínu.
2. Ferðalög.
Dagana 28. júní til 14. jiilí fór ég í ferðalag til
Blönduóss, Húsavíkur og Norðfjarðar. Frá öllum þess-
um stöðum höfðu mér borizt óskir um athugun á
stofnun mjólkurbús, meðan ég var á Sauðárkróki. I
þessari ferð ræddi ég um mál þessi við kaupfélags-
stjórana og stjórnir kaupfélaganna.
15.—19. ágúst fór ég upp í Borgarfjörð og átli tal
við nokkra bændur, sem höfðu keypt sér mjaltavélar,
og leiðbeindi ég þeim um meðferð og hirðingu vélanna.
Til Skagafjarðar fór ég 15. seplember og dvaldi þar
í 10 daga og aðstoðaði við stofnun Sambands naut-
griparæktarfélaga í Skagafirði.
9.—14. nóvember fór ég ferð til Blönduóss og Haga-
nesvíkur. Var ég á almennum héraðsfundi á Blöndu-
ósi, þar sem rætt var um stofnun mjólkursamlags.
I Haganesvík var ég á sameiginlegum fundi með stjórn
Samvinnufélags Fljótamanna og stjórn Kaupfélags
Austur-Skagfirðinga, og var þar rætt um mjólkurmál
Austur-Skagfirðinga og viðhorf það, er skapazt myndi
i þeim málum, eftir að bílasamgöngur kæmust á til
Siglufjarðar.
,1. Önnur störf.
Af öðrum störfum má nefna: Seinni bluta ársins
tók ég nokkurn þátt í störfum Verðlagsnefndar land-
búnaðarafurða sem varamaður í nefndinni. Búnaðar-
þing starfaði i vikutima í ágúst, og var ég skrifstofu-
stjóri þess. Þá flutti ég útvarpserindi hinn 29. ágúst
um mjaltavélar, skrifaði greinar í blöð og tímarit um