Búnaðarrit - 01.01.1947, Page 26
20
BÚNARARRIT
séu trésmíðavélarnar taldar með, eins og vera lier, er
stofnkostnaður nú um 95 þús. kr. Mun það um ein-
um þriðja Iægra en almennt gerist nú.
Hinn 10. október sat ég fund með stjórnarnefnd
Hólms, þeim Birni hreppstjóra Runólfssyni í Holti,
Þórarni Helgasyni í Þykkvabæ og Sveini Einarssyni
í Reyni.
Þar voru eftirfarandi ályktanir gerðar:
1. Skorað á stjórn Búnaðarfélags íslands að beita
sér fyrir ])vi, að Aljjingi veiti á næsta árs fjár-
lögum 25 þúsund krónur til verkstæðisbygging-
arinnar.
2. Skorað á stjórn Búnaðarfélags íslands að útvega
12 þúsund króna rekstrarsyrk til smíðaskólans
á næsta ári — kennslulaun, verkfæri o. fl.
3. Ák varðanir um smíðaskólann voru gerðar sem
hér segir:
a) Smíðanámskeið skal hefjast um næstu ára-
mót og standa yfir í 6 mánuði, eða til júní-
loka.
b) Teknir skulu 5—6 nemendur.
c) Nemendur skulu vinna 7 klst. daglega, en auk
þess hafa rélt til að vinna 2 klst. daglega að
smíðum fyrir sjálfa sig.
d) Bóklegt nám í íslenzku, stærðfræði og teikn-
ingu ca. 4 klst. á viku.
e) Fyrir dvalarkostnað og kennslu greiði nem-
endur 200 krónur á mánuði.
f) Sé unnið að húsasmíði að vorinu, fá nemend-
ur einhverja sérstaka þóknun fyrir það.
Jafnframt því að gefa stjórn Búnaðarfélags fs-
lands þessar upplýsingar um ástæður stofnunarinnar
á Hólmi, tel ég nauðsynlegt, að ráðstafanir verði gerð-
ar nú þegar til þess að afla þess fjár, sem um er beðið.
Forstjóri Hólms, Valdimar Runólfsson, gaf j)á svo