Búnaðarrit - 01.01.1947, Side 32
2(5
BÚNAÐARRIT
en Icngur mun ríkisstjórnin ekki geta i'restað að taka
ákvarðanir sínar.“
Þetta sumar (1945) var mikil hreyfing meðal bænda
um stofnun stéttarsamtaka, sem aðallega hefðu með
höndum verðlagsmál landbúnaðarvara og önnur bein
hagsmunamál bændastéttarinnar. Auka-Búnaðarþing-
ið breytti lögum Búnaðarfélags íslands í það horf, að
innan félagssamtakanna væri stofnuð sjálfstæð deild,
sem nefndist Stéttarsamband bænda. Lagabreytingar
þessar er að finna i búnaðarþingstíðindum 1945.
Strax að afloknu auka-Búnaðarþingi sltrifaði stjéirn
Búnaðarfélagsins landbúnaðarráðherra svohljóðandi
bréf:
„Jafnframt því sem stjórn Búnaðarfélagsins sendir
yður, hæstvirtur ráðherra, bráðabirgðabreytingar á
lögum Búnaðarfélags íslands ásamt samþykktum
varðandi verðlagsmál landbúnaðarins, er nýafstaðið
Búnaðarjiing afgreiddi í liendur stjórnar félagsins,
þá vill stjórnin leggja áherzlu á, að ríkisstjórnin sæi
sér fært að fela Stéttarsambandi bænda og fram-
kvæmdaráði þess ákvarðanir í verðlagsmálum land-
búnaðarins. Framkvæmdaráð stéttarsambandsins mun
geta tekið til starfa fyrir þann tíma, er ákveða þarf
haustverðið. Sérstök nefnd var kosin af þinginu til
að ræða við fulltrúa frá Alþýðusambandi íslands, eins
og landbúnaðarráðherrann lagði áherzlu á í bréfi til
stjórnar Búnaðarfélagsins. Komu nefndarmenn sér
saman um drög að samkomulagi, sem lögð voru fyrir
þingið, en þar sem ekki náðist fullt samkomulag milli
þessara aðila og sjáanlegt var, að sá ágreiningur yrði
ekki jafnaður innan þess tíma, sem um ræðir i bréfi
ráðherrans, þá samþykkti Búnaðarþing að fela stjórn
félagsins áframhaldandi viðræður við Alþýðusam-
bandið um ]>essi mál. Viðkomandi tillögum á þing-
skjali nr. 34 um verðlagsmál, vill stjórn Béinaðarfé-