Búnaðarrit - 01.01.1947, Blaðsíða 150
144
BÚNAÐARRIT
Ritstjóri Freys.
Árið 1945.
Þann 9. júlí 1945 kom ég heim til Islands eftir 14
ára dvöl erlendis. Var um það samið, fyrir milligöngu
lándbunaðarráðuneytisins, ári áður en leiðin opnaðist
heim yfir hafið, að þegar stríði lyki, kæmi ég til ís-
lands og gerðist starfsmaður á einhverju sviði islenzks
landbúnaðar. Hvarf ég því frá stöðu minni, er ég hafði
haft um nokkurra ára skeið við Rannsóknastofnun
Landbúnaðarháskólans í Kaupmannahöfn.
Þegar heim kom, réðst ég strax til Rúnaðarfélags
íslands og gegndi fyrst um sinn ýmsum skrifstofu-
störfum, bjó rit undir prentun o. fl.
í septemberbyrjun var Stéttarsamband bænda stofn-
að, en þegar starfsemi þess hófst fyrir alvöru í októ-
bermánuði, tók ég að mér störf á vegum þess. Sam-
kvæmt ákvörðun stofnfundar Stéttarsambandsins var
svo fyrir mælt, að það skyldi starfa í tengslum við
Búnaðarfélag íslands fyrst um sinn að minnsta kosti.
Var ég því í senn starfsmaður beggja aðila. Þegar á-
kveðið var, að Stéttarsambandið skyldi hefja útgáfu
málgagns, tók ég að mér ritstjórn þess og sá um
bæði ritstjórn og afgreiðslu Félagstíðinda Stéttarsam-
bands bænda, sem út komu í tveim heftum í nóvember
og desember 1945 og voru send til allra bænda í land-
inu.
Um áramótin 1945—46 var ákveðið, að Félagstíð-
indin og búnaðarblaðið Freyr skyldu sameinast í eitt
málgagn, með Búnaðarfélagið og Stéttarsambandið
sem útgefendur, en stækkun Freys hafði áður verið á-
kveðin af Búnaðarþingi 1945.
Tók ég við ritstjórn blaðsins fyrir báða aðila, en
hafði jafnframt skrifstofuhald og aðrar framkvæmdir
að annast á vegum Stéttarsambandsins og gegndi ýms-