Búnaðarrit - 01.01.1947, Side 65
BÚNAÐARRIT
59
Febrúar svipar til fyrra mán., en þó kaldara. Frá
1.—6. febrúar var frostlaust, milt og gott veður. Frá 7.
—11. s. m. snjóaði tvisvar dálítið með frosti, en bjart-
viðri. Frá 12.—18. þýðviðri og töluverð rigning án
verulegra vinda. Þann 19. snjóaði allmikið, en leysti
upp næstu 3 daga. Úr því var sól og bjartviðri, en all-
mikið frost það, sem eftir var mánaðarins. Yfirleitt
var tíðarfarið í febrúar hagstætt beitarfénaði. Færi
var oftast gott yfir Hellisheiði.
Marz var svalur í byrjun, en hlýnaði eftir 3. s. m.
og hélzt góðviðristíð að mestu allan mán. Snjór féll
nokkur 9., 10. og 29. marz, en þetta var rétt föl i byggð.
Jörð það frosin, að ekki var unnt að plægja. Sólfar
var meir en venjulega, og gott ástöðuveður fyrir úti-
pening.
Vorið (april—maí). Apríl byrjaði með þýðviðri, og
var svo allan mán., að úrkoma varð alltaf annað veif-
ið. Aldrei þurrt lengur en 2—4 daga i einu. Hiti oft-
ast lágur. Plógþýtt varð 8. apríl og úr því. Áttin oft-
ast suðlæg fram að 22., en þá gerði kuldakast i 5 daga.
20. apríl var fyrst sáð höfrum og bj'ggi 29.—30. apríl.
Tún byrjuðu að grænka í byrjun mán., en fór hægt
að vegna kulda, einkum kastsins, er varð um sumar-
mál. Útigangshrossum lítið gefið og sleppt um 20.
Snjóföl varð 12. og 23., en leysti strax upp.
Maí Óvenjulega sólríkur og þurrviðrasamur í
mesta lagi. Klaki úr jörð um 10. maí. Grasspretta fór
afar hægt að vegna vatnsskorts, en hiti var hærri
en í meðallagi. Lokið kornsáningu 7., og víðast komið
upp í ökrum 10.—15. maí eða með fyrra móti. Kart-
öflusetning hófst víða frá 11.—15. Allmikið rok á
austan varð 30. mai, en olli ekki teljandi skemmdum
á gróðri. Kúm víða sleppt um 10. mai. Sauðburður
gekk vel, þvi að tíðin var mild og hlý, en þurrviðrin
lálmuðu grasvexti.